Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Frú forseti. Mig langar að koma inn á eina grein frumvarpsins en í 15. gr. þess, um húsnæðisgrunn og byggingagátt, er kveðið á um hlutverk nýrrar stofnunar. Þar segir, með leyfi forseta:
„Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skal starfrækja rafrænan gagnagrunn, húsnæðisgrunn, sem heldur utan um gögn og upplýsingar um húsnæðismál. Einnig skal stofnunin starfrækja rafræna byggingagátt sem sveitarfélög skulu nota við útgáfu byggingarleyfa og framkvæmd stjórnsýslu byggingarmála, auk þess að halda utan um upplýsingar um mannvirki og mannvirkjagerð um land allt.“
Hér er að vissu leyti verið að breyta ferlinu við útgáfu byggingarleyfa. Það verður nú farin sú leið að sótt verður um byggingarleyfi til nýrrar stofnunar en hlutverk byggingarfulltrúa sveitarfélaga verður væntanlega óbreytt en þeir hafa samkvæmt lögum m.a. það hlutverk að annast öryggis- og lokaúttektir. Það er engu að síður svo að aðrir hlutar í byggingareftirliti skipta miklu máli, byggingarfulltrúi þarf hvenær sem er að geta gripið inn í. Það sem á eftir að útskýra er: Hver ber bótaábyrgð ef koma upp gallar á síðari stigum? Er það ný stofnun sem við ræðum um hér eða eru það byggingarstjórarnir sjálfir? Hver verður þeirra ábyrgð eftir gildistöku laganna?
Í 15. gr. er kveðið á um að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skuli starfrækja rafrænan gagnagrunn, svonefndan húsnæðisgrunn, sem er miðlægur gagnagrunnur um húsnæðismál sem heldur auk þess utan um ýmis gögn og upplýsingar um þessi mál. Auk þess skal Húsnæðis- og mannvirkjastofnun starfrækja rafræna byggingagátt sem sveitarfélög skulu nota við útgáfu byggingarleyfa og framkvæmd og halda utan um upplýsingar eins og ég kom að áðan. Hér vil ég benda á að byggingagátt er byggð á skoðunarhandbókum en þær eiga að sjálfsögðu að uppfylla lágmarkskröfur. Ég velti því fyrir mér hvort verið sé að skylda byggingarstjóra til að notast við lakara kerfi þegar fjöldinn allur af betri kerfum er í boði. Þau kerfi eru vottuð og mig minnir að ég hafi heyrt að til væru a.m.k. fjögur slík kerfi.
Í þessu sambandi er rétt að benda á að rafmagnsöryggisgátt snýr að stjórnsýslu rafmagnsöryggismála sem er alfarið í höndum Mannvirkjastofnunar. Byggingagátt eða svokallaður gagnagrunnur Mannvirkjastofnunar er allt annars eðlis lagalega og snýr aðallega að því að safna gögnum úr stjórnsýslu embætta byggingarfulltrúanna sem eru hvert og eitt sjálfstætt stjórnvald og mörg hver þegar með umsóknarvefi. Allt öðrum gögnum er safnað annars vegar í byggingagátt og hins vegar rafmagnsöryggisgátt. Samlegðin er einhver. Ef búið er að smíða þessi grunnkerfi, af hverju hefur þá smíði byggingagáttar nú þegar kostað rúmar 100 milljónir, eins og kom fram áðan í máli hv. þm. Sigurðar Páls Jónssonar? Henni er ekki enn lokið og þá getur maður velt því fyrir sér: Var raunverulega farið yfir það hversu vel grunnkerfi rafmagnsöryggisgáttar hentuðu þessari byggingagátt? Er hægt að samræma þessa hluti?
Að mínu mati hefði verið eðlilegt að bjóða út vinnu við gerð byggingagáttar eins og gert var með rafmagnsöryggisgáttina á sínum tíma. Það eru margar spurningar sem vakna. Af hverju er t.d. slökkvilið að selja þjónustu við hugbúnaðargerð? Það var aðeins tæpt á því hér fyrr. Er það sérhæft á því sviði? Er þessi hluti aðskilinn frá öðrum rekstri slökkviliðsins, samanber ákvæði samkeppnislaga? Það koma fram margar spurningar og þá sérstaklega hver beri ábyrgð þegar upp er staðið.
Mig langar til að vitna í umsögn sem barst við frumvarpið í þessu sambandi, með leyfi forseta:
„Það er ekki lögbundið hlutverk Mannvirkjastofnunar að útbúa miðlæga gátt þar sem hægt er að sækja rafrænt um byggingarleyfi. Stjórnsýsla málaflokksins er hjá byggingarfulltrúum og sveitarfélögunum og þeim er ekki skylt og jafnvel ekki heimilt að bjóða upp á að sótt séu um byggingarleyfi í gegnum byggingagátt Mannvirkjastofnunar …“
Þetta segir Ingibjörg Halldórsdóttir, fyrrverandi lögfræðingur Mannvirkjastofnunar í bréfi til stofnunarinnar, dags. 6. mars 2019, fyrir hönd síns umbjóðanda, Ajour Ísland.
Það þarf sem sagt að vera ljóst hvert verið er að færa þessa stjórnsýslu. Það þarf að vera ljóst hverjir eiga að hafa þetta lögbundna hlutverk.
Fleira mætti nefna úr umsögnum, t.d. úr umsögn Samtaka iðnaðarins en þar segir annars, með leyfi forseta:
„Þess ber þó að geta að SI telja jafnvel rétt að ganga lengra en hér er gert til að auka enn frekar skilvirkni og yfirsýn í málaflokknum. Í því samhengi ber að nefna að skipulagsmál, sem eru nátengd húsnæðis- og mannvirkjamálum, eru á hendi sveitarstjórnarráðuneytisins og Skipulagsstofnunar en húsnæðis- og mannvirkjamál hjá félagsmálaráðuneytinu. Rétt er að skipulagsmál séu innan sama ráðuneytis og mannvirkjamál og úr verði öflugt innviðaráðuneyti. Þá væri auk þess æskilegt að skoða samlegðaráhrif með aukinni samvinnu annarra opinberra stofnana sem starfa í þessum málaflokki, t.d. Skipulagsstofnun og Þjóðskrá.“
Það mætti taka til fleiri þátta, t.d. löggildinga og löggildingarþætti slökkviliðsmanna á alþjóðaflugvelli eins og í Keflavík. Er þeim ætlaður staður í þessu ferli? Önnur spurning sem ég hef velt fyrir mér og við í minni hlutanum höfum töluvert rætt um er hvort við séum virkilega að fara að búa til nýtt Orra-kerfi. Þó að við deilum með tveimur í það er á endanum um töluverða fjármuni að ræða ef við veltum upp rekstri á slíku kerfi og hvað Orri hefur kostað ríkið hingað til.
Að lokum vil ég nefna það, sem margir hafa talað hér um á undan mér, að það er búið að taka fullstuttan tíma í þetta mál. Ef ég man rétt þá var það eiginlega þannig að við gátum ekki tekið á móti fleiri gestum þar sem hv. velferðarnefnd var runnin út á tíma. Þannig að það má vissulega gagnrýna allt þetta ferli, við fengum engan veginn nægan tíma í nefndinni og sérstaklega má líka nefna það að hér í þinginu hefur varla gefist tími til að ræða málið svo fullnægjandi sé.