Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Varðandi 15. gr., byggingagáttina, sveitarfélögin og ákall þeirra og annarra aðila er það alveg rétt — og ég veit að iðnaðarmenn og þeir sem sýsla með þessa hluti hafa kallað eftir einhverjum samræmdum leiðum eða samræmdum vettvangi til að geta haft meiri skýrleika á hlutunum. Það er allt gott og blessað og ég skil það vel en ég er ekki sammála því að það eigi að fara bara eina leið. Það liggur við að það þurfi að búa til frá grunni nokkuð sem nú þegar er búið að kosta til meira en 100 milljónum til að setja á stofn. Við vitum að til eru fleiri leiðir, fleiri grunnar sem nú þegar er hægt að nota. Þess vegna nefni ég það að við séum að búa til hugsanlega nýtt Orra-kerfi. Þar var tekið til og búið til grunnkerfi en við vitum að það er til fullt af öðrum kerfum sem hægt er að nota. Það hefur kostað sitt og ég er alveg sannfærð um að þetta muni kosta líka.