150. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2019.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

319. mál
[12:23]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar til að koma inn á nokkra þætti í ræðu hv. þm. Guðmundar Inga Kristinssonar. Hann telur að við höfum unnið málið um aðgengismál fatlaðra með þvílíkum hraða að það hafi einhvern veginn fallið út af borðinu, en þessi umsögn barst bara í dag. Umsagnarferlinu lauk 5. desember og umsögn Sjálfsbjargar kom 11 dögum síðar en er engu að síður mjög mikilvæg. Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því að þetta mál verði út undan. Samkvæmt lögum nr. 160/2010 annast Mannvirkjastofnun aðgengismál og við höldum í engu að þessi mál verði út undan.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann telji ekki tryggara að þegar þessi sameinaða stofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, verði komin undir félagsmálaráðuneytið sem fer með þessi málefni verði því fylgt eftir af ráðuneytinu að aðgengismál verði örugglega tryggð. Þau eru gríðarlega mikilvæg, alveg jafn mikilvæg og þau hlutverk sem Mannvirkjastofnun hefur að öðru leyti.

Telur hv. þingmaður ekki að þessum málefnum sé betur fyrir komið hjá þessu ráðuneyti en annars staðar?