breyting á ýmsum lögum um skatta.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir að flytja þetta nefndarálit sem ég skrifa undir. Ég er mjög hlynnt frumvarpinu og þeim breytingum sem við gerðum í nefndinni. Mér fannst samt ástæða til að nefna hér nokkra þætti. Í fyrsta lagi ítreka ég mikilvægi þessa frumvarps við að ná þeim markmiðum sem stjórnvöld settu sér, í fyrsta lagi í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, svo í aðgerðaáætlun sem þetta þing samþykkti um orkuskiptin og ekki síst í áætlunum okkar um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og stuðla að aukinni kolefnisbindingu til að ná Parísarsamkomulaginu fyrir 2030 og markmiði ríkisstjórnar um kolefnishlutleysi árið 2040. Ég hygg að þær aðgerðir sem hér er verið að fara í séu mjög mikilvægar og til mikilla bóta og vil ég hrósa sérstaklega þeirri hugmyndafræði að við tökum bæði rafmagnshjól og hefðbundin hjól inn í þessar undanþágur, bæði til að vinna að þeim markmiðum sem ég hef nefnt en ekki síður ákveðnu lýðheilsumarkmiði.
Mig langar að ítreka það sem kemur fram í nefndarálitinu og ég hygg að hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar, Óli Björn Kárason, hafi komið inn á, að nefndin beinir því til ráðuneytisins að kanna sem fyrst hvernig ívilnunar geti notið við fyrir nytjahjól og hjól fyrir hreyfihamlaða og ljúka þar af leiðandi við endurskoðun á tollflokkun tollskráningar fyrir þau. Við fengum ágætisumsagnir og athugasemdir frá Öryrkjabandalaginu um það.
Mig langar að nefna mikilvægi þess að við setjum með þessu almenningssamgöngurnar inn í þennan pakka. Það hefur ekki verið hingað til, við höfum ekki verið með niðurfellingu á virðisaukaskatti fyrir strætisvagna og ég held að hún skipti mjög miklu máli í vegferð okkar hvað orkuskiptin varðar. Við í nefndinni hækkum þann kvóta en beinum því jafnframt til ráðuneytisins að endurskoða þau takmörk ef þakinu verður náð áður en gildistími ákvæðisins er á enda.
Þá er ástæða til að geta þess að inni í þeim hluta er lýtur að almenningssamgöngunum eru metan og metanól líka dregin upp. Metanvagnar fá þá endurgreiðslu á virðisauka en það á ekki við þegar kemur að heimilisbílnum og mig langaði að nefna hér að ástæða þess er líklega sú að metanbílar eru samkeppnishæfir í verði þegar kemur að bensín- og dísilbílunum. Engu að síður virðumst við hafa náð mjög litlum árangri í að metanvæða bílakostinn. Það er mjög sorglegt í ljósi þess að í dag brennum við metangasi sem gæti dugað fyrir 4.000–5.000 smábíla. Þetta er mikið og stórt umhverfismál, ég tala nú ekki um þegar við munum um mitt næsta ár tvöfalda framleiðslu á metani. Þetta er vottað, vistvænt, innlent eldsneyti og metanið verður til úr úrganginum okkar, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Nú erum við að fjárfesta í gríðarlega dýrri og mikilvægri gas- og jarðgerðarstöð uppi í Álfsnesi, aukum þannig metanframleiðsluna og því er synd að þessi orkugjafi sé ekki meira nýttur. Þess vegna langar mig að benda á það sérstaklega að þó að við höfum ekki getað komið til móts við þau sjónarmið í þessu frumvarpi þar sem þessar ívilnanir eiga ekki við um metan í dag og við erum fyrst og fremst að framlengja þær — helstu rökin hafa verið að metanbíllinn er tiltölulega samkeppnishæfur í verði — held ég að þetta sé nokkuð sem ráðuneytið og við hér þurfum að huga að, hvort nauðsynlegt sé að grípa til einhverra aðgerða og þá hvaða aðgerðir það ættu að vera, til að ýta undir það að metan sem er framleitt hér sé a.m.k. nýtt og þurfi ekki að brenna því eða sóa með öðrum hætti.