tekjustofnar sveitarfélaga og sveitarstjórnarlög .
Herra forseti. Mér finnst með ólíkindum ef það er beinlínis nefnt að ekki hafi þótt ástæða til. Eitt er nú ef það er ekki mögulegt. Ég biðst afsökunar, herra forseti, á því að hér erum við ekki í efnislegri umræðu um akkúrat þetta mál en hins vegar skiptir líka máli hvernig ferill mála er. Við þurfum örugglega að kalla eftir sérstakri umræðu um þá hluti sem hv. þingkona nefndi áðan. Ég velti fyrir mér hvernig þessi samráðsgátt nýtist og eigi að nýtast. Við höfum séð mál, þó ekki þetta, sem voru sett í samráðsgátt í vor, fengu fullt af umsögnum en tóku ekki neinum efnislegum breytingum en koma samt svo seint inn að varla er hægt að fjalla um þau. Þá spyr maður hvort ráðherra líti á samráðsgáttina sem einhvers konar útstillingarglugga: Sjáið hvað ég er að setja á dagskrá! eða: Sjáið þið hvað ég er lýðræðisleg eða lýðræðislegur!
Þegar ekkert er gert með umsagnir þar og Alþingi er ekki heldur gert kleift með nægilegum fyrirvara að óska eftir umsögnum og fá inn gesti spyr ég hvort þetta sé allt í plati. Mér finnst fullt tilefni til þess að við tökum umræðu um það og þótt ekki væri nema í því ljósi finnst mér afskaplega mikilvægt að þetta minnihlutaálit hafi komið fram. Það bendir einmitt á hluti sem við þurfum greinilega að laga í þinginu.