tekjustofnar sveitarfélaga og sveitarstjórnarlög .
Herra forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og er hjartanlega sammála honum um að þetta var nákvæmlega tilgangurinn með þessu minnihlutaáliti, að festa þetta niður. Þetta er tilraun til að stinga niður fæti til að við náum að sameinast um betri vinnubrögð. Ég verð bara að segja að ég má ekki til þess hugsa að við förum inn í vorið með samsvarandi vinnubrögð.
Ég skil þetta að vissu leyti. Það er fullt af málum og þau mál sem við höfum bæði verið að vísa í til viðbótar við þetta tiltekna mál eru mörg hver á einhvern hátt tengd kjarasamningum síðasta vors. Það hefur verið mikið álag á þeim ráðuneytum sem um ræðir en það er algjörlega óboðlegt að allt það ferli, þ.e. flýtir á málum, bitni síðan á lokasprettinum sem er þingleg meðferð í lagasetningu. Þetta eru mikilvæg mál og margt hangir á spýtunni, ráðuneytin eru undirmönnuð og á kafi í vinnu. Lagasetningin sjálf ætti að vera helgust af öllu þessu ferli. Það er það sem við þurfum að passa upp á.
Ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni að það er full ástæða til að við ræðum málið í þessu stóra samhengi eftir áramót vegna þess að það sem má síst verða er að tilraunin um samráðsgáttina reynist andvana fædd í þeim skilningi að hún verði annaðhvort það sem hv. þingmaður kallaði með réttu útstillingarglugga, verði orðin tóm frekar en að hugur fylgi máli. Það er hægt að nýta hana til góðra verka við lagasetningu en það hlýtur að vera lagasetningin sjálf og að vandað sé til verka við hana hér inni sem skiptir mestu máli.