150. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[14:54]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Tvö atriði hérna sérstaklega. Til að byrja með: „felur ekki í sér nýjar skuldbindingar af hálfu ríkisins.“ Í því viðbótarsamkomulagi sem er undirliggjandi í þessari lagabreytingu eru 15 ár í viðbót sett inn sem skuldbinding ríkisins miðað við þau 15 ár sem voru fyrir endurskoðunarákvæði kirkjujarðasamkomulagsins. En nú hefur það komið fram í umræðunni hérna að 15 ár standast ekki lög um opinber fjármál þannig að það er tvímælalaust um ansi mikla skuldbindingu að ræða af hálfu ríkisins miðað við það lagaumhverfi sem við búum við núna, öfugt við það sem við bjuggum við í kringum gerð kirkjujarðasamkomulagsins upprunalega.

Í annan stað er svona andlag kirkjujarðasamkomulagsins 1997/1998 að gera fullnaðaruppgjör á eignatilfærslunni sem var gerð þá frá kirkjunni til ríkisins. Miðað við að það vantar að skilgreina hvernig það uppgjör er statt, hvernig er hægt að fara út í viðbótarsamning til 15 ára í viðbót án þess að sýna okkur stöðuna á því hvernig uppgjörið lítur út? Erum við búin að borga helming skuldarinnar? Hver er hluti þjónustukaupanna í þessu? Hver er hluti þess að standa við stjórnarskrárákvæðið í þessum samningi? Og þegar allt kemur til alls: Hvenær losnum við þá skuld sem hefur verið færð frá kirkjunni af ríkinu af veraldlegum og endanlegum eignum?