fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Við greiðum hér atkvæði um tímamótamál. Það er sérstakt fagnaðarefni að við sem samfélag skulum vera að stíga þetta skref. Eins og komið hefur fram í máli annarra þingmanna þarfnast frumvarpið lagfæringa á milli umræðna og verður kallað inn til nefndar en ég ítreka það sem hefur komið fram hjá öðrum þingmönnum, það er sérstakt fagnaðarefni að við sem samfélag skulum vera að stíga þetta skref. Þetta er hluti af stjórnarsáttmálanum og jafnframt hluti af lífskjarasamningunum og er mikið gleðiefni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)