fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Það er mikið fagnaðarefni að við skulum vera að greiða hér atkvæði um lengingu fæðingarorlofs og að sjálfsögðu styð ég það. Mér finnst hins vegar mikilvægt í ljósi ummæla ýmissa þeirra þingmanna sem hér hafa tekið til máls að það komi skýrt fram að heildarendurskoðun á fæðingarorlofskerfinu stendur yfir. Við fáum það væntanlega til vandaðrar umfjöllunar hér þegar þar að kemur og þeirri vinnu verður lokið. Ég hef kynnt mér vinnu þeirrar nefndar sem vinnur að endurskoðuninni og þar er verið að velta við öllum steinum og skoða allt það sem þarfnast nánari skoðunar í þessum málum.