fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Ég tek undir með þeim sem hér hafa haft orð á því að það sé sérstakt fagnaðarefni að við skulum vera komin á þann stað að vera með meiri hluta fyrir því að fæðingarorlof verði lengt upp í 12 mánuði. Við í Viðreisn styðjum það. Hins vegar er sérstakt umhugsunarefni og hlýtur að vera þeim sem hér ráða för áhyggjuefni líka, a.m.k. er það mér áhyggjuefni, að meira að segja í máli sem nýtur þetta víðtæks stuðnings og virkar jafn einfalt og þetta er og hefur jafn langan undirbúningstíma að baki skuli vera hægt að flækja málið það mikið í meðförum nefndar að það þurfi að kalla það inn aftur og ræða upp á nýtt.
Ég óska eftir betri vinnubrögðum hér eftir en við styðjum málið.