150. löggjafarþing — 46. fundur, 16. des. 2019.
neytendalán.
223. mál
Herra forseti. Það er fagnaðarefni að við skulum vera að klára þetta mál því að hér er á ferðinni enn eitt góða málið. Ástæða þess að ég kveð mér hljóðs um atkvæðagreiðsluna er sú að það er full ástæða til að ítreka þakkir sem hér hafa verið færðar fram, sérstaklega til þingmannanna Oddnýjar G. Harðardóttur og Bryndísar Haraldsdóttur fyrir vinnu þeirra í þessu máli, auk efnahags- og viðskiptanefndar allrar.