neytendalán.
Virðulegur forseti. Við greiðum hér atkvæði um að lækka árlega hlutfallstölu kostnaðar úr 50% í 35%. Ég mismælti mig víst áðan og sagði 20% en tillagan er sem sagt upp á 35%. Þá er ástæða til að geta þess að í frumvarpinu er sérstaklega tekið á því að neytendum sé óskylt að greiða heildarlántökukostnað láns þegar lánveitandi brýtur gegn ákvæðinu. Í umræðunni um þetta ákvæði hefur verið horft til þess hvernig reglur eru á öðrum Norðurlöndum og þar er lægst 20%, í Finnlandi, en þar eru reyndar líka önnur ákvæði um fastan kostnað. Ég hygg að með þessu náum við töluverðum árangri þó að 35% sé að sjálfsögðu töluvert hátt og við hvetjum til þess að haldið verði áfram að fylgjast með þróun á þessum markaði á Norðurlöndunum.