tekjustofnar sveitarfélaga og sveitarstjórnarlög .
Herra forseti. Við greiðum atkvæði um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og sveitarstjórnarlögum (forsendur úthlutana úr jöfnunarsjóði). Enn og aftur kem ég hér upp og lýsi vonbrigðum yfir að þurfa að sitja hjá vegna þess hvernig vinnubrögðum við afgreiðslu þessa máls var háttað. Það kom út úr samráðsgátt um mitt sumar og niðurstöður þess samráðs voru birtar þá. Fjórum mánuðum síðar kom málið fyrir þing. Það var sent út til umsagnar, fresturinn hafður tvær vikur og málið afgreitt út úr nefnd þrem dögum síðar. Af þeim átta sem sendu inn umsögn voru tveir kallaðir inn sem gestir, Samband íslenskra sveitarfélaga og ráðuneyti samgöngu- og sveitarstjórnarmála. Svo dæmi sé tekið fékk Reykjavíkurborg ekki að koma fyrir nefndina í þessu máli þrátt fyrir greinilegan ágreining um útreikninga á úthlutun tiltekinna framlaga úr jöfnunarsjóði frá langstærsta sveitarfélagi landsins. Vissulega óskaði borgin eftir fundi eftir að málið var tekið út en henni hefur kannski verið vorkunn, (Forseti hringir.) þrem dögum eftir að hún skilaði inn umsögn og hafði ekki fengið minnisblaðið um að Alþingi væri að stimpla sig út í meðferð stórra þingmála hér.
Ég hafna þessum vinnubrögðum og þingflokkur Viðreisnar situr hjá.