150. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2019.

tekjustofnar sveitarfélaga og sveitarstjórnarlög .

391. mál
[20:28]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Tvö nefndarálit voru lögð fram í þessu máli frá umhverfis- og samgöngunefnd. Ég ritaði nafn mitt á nefndarálit meiri hlutans en er þó talsvert hugsi. Ég er algjörlega sammála því sem fram kemur í áliti minni hlutans og set spurningarmerki við afgreiðsluháttinn, þann mikla flýti og að hagsmunaaðilum hafi ekki verið gefinn kostur á að gera grein fyrir afstöðu sinni með heimsókn til nefndarinnar og skýra nánar umsagnir sínar, sérstaklega hvað varðar stærsta sveitarfélag landsins, Reykjavíkurborg.

Með þessu frumvarpi er verið að eyða réttaróvissu sem ekki verður leyst úr með öðru móti en að kveða nánar á um orðalag í lagatexta. Þinglegu meðferðinni mæli ég ekki bót, þau vinnubrögð sem hér eru viðhöfð eru til vansa og ekki hinu háa Alþingi til neins sóma.