150. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2019.

tekjustofnar sveitarfélaga og sveitarstjórnarlög .

391. mál
[20:30]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Sumar atkvæðagreiðslur eru skemmtilegar og vekja hjá manni gleði, aðrar síður. Ég mun styðja þetta frumvarp en það er ekki heitur stuðningur, það er varla volgur stuðningur sem ég get veitt. Ástæðan er sú að uppbygging Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og hvernig úthlutað er úr honum gengur gegn öllu því sem ég stend fyrir þar sem frekar er verið að refsa sveitarfélögum fyrir að gæta hófsemi og verðlauna þá sem standa sig fremur illa í rekstri.

Hæstv. forseti. Það verður að endurskoða allar reglur og leikreglur sem um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga gilda þannig að hér sé eitthvert jafnræði og ekki verið að refsa sveitarfélögum fyrir að gæta hófsemi og standa sig vel í rekstri og þjónustu við íbúana.

Ég mun styðja frumvarpið en voðalega er stuðningurinn volgur. (Forseti hringir.) Hann er ískaldur.

(Forseti (SJS): Það er bara af eða á þegar kemur að atkvæðagreiðslunni.) [Hlátur í þingsal.]