tekjustofnar sveitarfélaga og sveitarstjórnarlög .
Virðulegur forseti. Ég skil málið einmitt þannig að við séum hér að greiða atkvæði um frumvarp sem gengur út á að eyða réttaróvissu í kjölfar dóms Hæstaréttar þar sem við erum að færa í lög vinnureglur sem viðhafðar hafa verið í jöfnunarsjóðnum. Ég vil engu að síður segja að það er nú grín á sveitarstjórnarstiginu að sirka þrír á Íslandi skilji Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Ekki skilja sveitarfélögin hann og ekki geta þau með neinu góðu móti áætlað hvað þau munu fá úr jöfnunarsjóði næstu ár þegar kemur að fjárhagsáætlunargerð. Mér finnst eðlilegt að horft sé til þess að fullnýta tekjuheimildir sveitarfélaganna þegar verið er að horfa á tekjujöfnunina en þegar verið er að horfa á kostnaðarjöfnunina er alveg út í hött að skerða framlög til sveitarfélaga ef þau standa sig virkilega vel í rekstri og geta leyft sér að hafa útsvarið lægra en hámarkið segir til um. Það er nokkuð sem við þurfum að taka á þegar við förum í heildarendurskoðun á jöfnunarsjóðnum, ég tala nú ekki um að gera þetta aðeins skýrara og einfaldara þannig að fólk skilji út á hvað jöfnunarsjóðurinn gengur.