staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Virðulegi forseti. Meðferð þessa máls er best lýst sem fúski. Málið var látið í hendurnar á kirkjuþingi og þar var voðalega mikið gert með að fólk fengi að tjá sig og taka sína lýðræðislegu afstöðu. Á Alþingi var þessu hins vegar hent inn alveg á lokametrunum, það fékk enga teljandi umfjöllun í nefnd, enga nema kynningu frá þeim sem standa fyrir málinu. Það fór ekki í umsagnarferli. Þó barst ein umsögn. Í henni er álitamál sem nefndin hefur auðvitað ekki rætt og núna á að samþykkja málið hérna á ofurhraða vegna þess eins að ríkið lætur við fjárhagsleg samskipti ríkis og kirkju eins og það sé einkamál kirkjunnar og komi skattborgurum og þegnum landsins ekkert við — eða þingmönnum ef út í það er farið. Það sést í gegnum alla þessa samninga, bæði núna og áður, að ríkið er að semja fyrir hagsmuni kirkjunnar og ver ekki hagsmuni skattgreiðenda. Það finnst mér alvarlegt og mér finnst það rangt. Það útskýrir líka vinnubrögðin trekk í trekk, aftur og aftur, (Forseti hringir.) um kirkjujarðasamkomulagið og tengda samninga í þessu fúski sem við afgreiðum hér.
Við greiðum atkvæði gegn öllu frumvarpinu.