staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Virðulegi forseti. Það er margt mjög alvarlega athugavert við bæði frumvarpið sjálft og meðferð þess. Það er ákvæði í því viðbótarsamkomulagi sem liggur undir þessu lagafrumvarpi sem gengur gegn lögum um opinber fjármál. Þingið á að taka það alvarlega.
Hérna eru atriði þar sem er verið að breyta fyrirkomulagi á milli þess sem var andlag kirkjujarðasamkomulagsins yfir í þetta viðbótarsamkomulag. Allt í einu er búið að stroka út í rauninni uppgjör gagnvart þeim eignum sem eiga að liggja þarna undir. Við höfum ekki enn fengið svör um það hversu miklar eignir er verið að gera upp. Hversu hátt hlutfall eru þær af þessu viðbótarsamkomulagi? Viðbótarsamkomulagið og frumvarpið líta út fyrir að vera launasamningur fyrir starfsmenn kirkjunnar, fyrir presta, þar sem ekkert tillit er tekið til þeirrar fækkunar sem hefur verið í þjóðkirkjunni á undanförnum árum eða verður fyrirsjáanlega á næstu árum.
Þetta er alveg hryllilega (Forseti hringir.) lélegur samningur, hann gengur gegn gildandi lögum og það er alveg hryllilega illa farið með lagafrumvarp á þingi.