150. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2019.

300 þús. kr. lágmarksframfærsla almannatrygginga.

17. mál
[20:54]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það er óþolandi að í landinu skuli vera til fólk sem þarf að lifa undir lágmarkslaunum, undir fátæktarlaunum. Það er óþarfi af því að við getum deilt byrðunum jafnar með okkur og það er óskynsamlegt vegna þess að afleiddur kostnaður af því að fólk búi við fátækt og geti ekki leitað sér læknishjálpar eða átt eðlilegt félagslíf skapar kostnað á öðrum stað. Á morgun munum við ræða hérna ójöfnuð sem varð vegna harðrar vetrarlægðar og flestir þingmenn sem hafa tjáð sig um það skilja þann ójöfnuð. Nú kemur í ljós hvort ríkisstjórnin skilur þann ójöfnuð sem felst í því að dæma jafnvel lítið barn til fátæktar frá fæðingu, hvort lífskjarasamningurinn á að ná til okkar og sumra eða allra í samfélaginu.