300 þús. kr. lágmarksframfærsla almannatrygginga.
Virðulegi forseti. Ég vil fyrst segja að það er metnaðarfullt markmið sem sýnt er með þessu máli með því að vilja tryggja þessum hópi 300.000 kr. lágmarksframfærslu á mánuði skatta- og skerðingarlaust. Það er hins vegar auðvitað útilokað að við getum tekið einhverja viti borna umræðu um svona tillögu án þess að ræða kostnað. Hver á að borga? Hvað kostar þetta?
Ja, ég myndi segja lauslega skoðað að þetta gæti hlaupið á tugum milljarða. Verðskuldar ekki svona mál a.m.k. einhverja smáumræðu um þann þátt málsins eða er þingið komið niður á það plan að menn taki ákvarðanir bara svona út í loftið um svona þætti?
Svo er hitt. Það er auðvitað enginn bragur á því að við séum að greiða atkvæði um þingsályktunartillögur sem fela ráðherrum að leggja fram frumvörp. Þingmenn hafa frumkvæðisrétt og geta lagt fram frumvörp. Það er alveg fráleitt að þingið sé að meðhöndla mál þannig (Forseti hringir.) að ráðherra sé falið að leggja fram frumvarp.
Ég get ekki stutt slíkt mál.