150. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2019.

300 þús. kr. lágmarksframfærsla almannatrygginga.

17. mál
[21:01]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við erum til hvar sem er og hvenær sem er að ræða hvernig hægt er að kosta tillögur sem hér eru lagðar fram. Við höfum margsinnis lagt fram tillögur (Fjmrh.: Hvað kostar þessi?) en þá kemur hæstv. fjármálaráðherra með eina frasann sem hann kann utan að: Þessi og þessi vilja bara hækka skatta. (Fjmrh.: Hvað kostar málið?)Hann gleymir hins vegar að minnast á (Forseti hringir.) að við viljum hækka skatta á þá sem fæddust með silfurskeið í munni og hafa aldrei þurft að hugsa um peninga. Ef einhvern tímann hefur þurft að eiga sér stað prinsippumræða án þess að við séum að telja baunir er það þegar við erum að tala um fólk sem er dæmt til fátæktar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)