150. löggjafarþing — 46. fundur, 16. des. 2019.
vegalög.
471. mál
Virðulegur forseti. Þetta er mjög fínt mál enda vorum við Píratar búin að leggja fram nákvæmlega eins mál. Það var enn í vinnslu í skjaladeildinni á nefndasviði þegar upp kom sú hugmynd hjá umhverfis- og samgöngunefnd að flytja það til að það kláraðist fyrir áramót. Það er bara frábært. Takk fyrir það.