150. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2019.

fjölmiðlar.

458. mál
[22:02]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tel brýnt að fara yfir það hvers vegna við erum að fara í þessa lagabreytingu. Í fyrsta lagi er lýðræðishlutverkið sem fjölmiðlar gegna. Fjölmiðlar eru mikilvægur vettvangur skoðanaskipta um þjóðfélagsleg málefni. Breytingar á umhverfi geta haft bein áhrif á það hvernig tekst til að halda lýðræðislegu fyrirkomulagi.

Í öðru lagi er menningarlegt mikilvægi. Fjölmiðlar eru hluti af því sameiginlega hagsmunamáli okkar að efla íslensku og stuðla að samfélagsumræðu.

Í þriðja lagi, eins og ég kom inn á í inngangsræðu minni, er að rekstur fjölmiðla, ekki bara á Íslandi, er mjög erfiður vegna þeirrar tækni- og samskiptabyltingar sem hefur átt sér stað á síðustu misserum. Þess vegna hefur staðan gjörbreyst í rekstri fjölmiðla.