150. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2019.

fjölmiðlar.

458. mál
[22:03]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar orð. Ég skil reyndar ekki asann á þessu máli en það er annað mál. Mér finnst af því sem ég er búinn að lesa í þessu frumvarpi lítið fara fyrir stóra bleika fílnum í Efstaleitinu. Hann ýtir kannski á að þessi þróun verði. Ég hef nokkrar spurningar. Á bls. 6 segir t.d., með leyfi forseta:

„Samningur mennta- og menningarmálaráðuneytis og Ríkisútvarpsins um fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu var undirritaður árið 2015 og rennur út í árslok 2019.“

Nú eru fáir dagar eftir af árinu 2019. Er vinnu við áframhaldandi samning lokið eða verður honum lokið á þeim fáu dögum sem eftir lifa ársins? Er eitthvað um það að segja?

Í öðru lagi: Hvað verður um svokallaða frjálsa fjölmiðla, sjálfstæði þeirra og frjálsræði, sem eru styrktir af ríkisfé þegar þeir eru orðnir háðir ríkinu um tekjur? Hefur ráðherra engar áhyggjur af því?

Ég heyrði áðan hæstv. ráðherra segja að fjölmiðlar hefðu menningarlegt hlutverk. Það er alveg hárrétt og þess vegna hlýt ég að spyrja: Verða þeim fjölmiðlum sem fá styrki sett einhver skilyrði, t.d. að þeir miðli upplýsingum og fréttum á íslensku, sem skortir mjög á hjá þeim flestum? Verður gerð gangskör í að laga það til? Hvað ætla menn að fá í staðinn fyrir þessa peninga, 400 milljónir mínus að vísu eitt stöðugildi og kostnað við nefnd af dýrari sortinni? Spurningin er: Hvaða kröfur ætlar ríkið að gera til þeirra fjölmiðla sem verða styrktir, t.d. um að þeir sinni því að varðveita íslensku sem þeir hafa ekki gert?