150. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2019.

fjölmiðlar.

458. mál
[22:15]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég veit ekki hvað er átt við með að þetta hafi gefið góða raun á Norðurlöndunum en þetta mál kemur væntanlega inn í mína nefnd þannig að ég skoða það betur þar og mun gera það með opnum huga. Stóri vandinn eins og ég sé hann varðandi lýðræðislegt hlutverk fjölmiðla í dag er ekki sá að hefðbundnir fjölmiðlar eigi erfitt með rekstur þótt það sé hluti af vandanum. Stóri vandinn í mínum augum er hvernig upplýsingadreifingu er stjórnað algjörlega á skjön við það sem þjónar lýðræðislegri umræðu, t.d. að við hv. 5. þm. Reykv. s. lækum og smellum á mismunandi hluta á netinu, geri ég ráð fyrir, og fáum þess vegna ólíkar upplýsingar. Umræðan sem við ættum að taka venjulega verður fyrir vikið aldrei til staðar. Þótt ég sé sósíalisti get ég samt keypt mér Morgunblaðið og lesið það og komist að því hvað hægri mönnum finnst. Það er ekki endilega hægt á netinu í dag sem er stór hluti af vandanum og fer í raun langt út fyrir það sem við getum gert hér til að laga.

Ég get líka auðveldlega ímyndað mér hugmyndir um fréttamiðil sem fjallar alfarið um Alþingi. Ég held að það gæti gagnast lýðræðislegri umræðu en ég sé ekki að það passi inn í módelið. (Forseti hringir.) Annað er leiðréttingafréttir, fréttir sem væru bara í því að leiðrétta fréttir og væru kannski gefnar út á netinu einu sinni í viku. Það myndi ekki falla undir þetta heldur. Það eru svona hugmyndir sem ég held að við þurfum frekar að styðja en hefðbundnu miðlana. Ég ítreka bara að ég mun skoða betur í nefnd það sem hæstv. ráðherra fór yfir í fyrra svari.