fjölmiðlar.
Frú forseti. Við ræðum frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla. Eins og öllum er ljóst sem hér eru erum við á síðustu metrunum á þessu haustþingi og það er svo sem ákvörðun út af fyrir sig að mæla fyrir þessu máli núna með það fyrir augum að koma málinu til nefndar. Það er búinn að vera mikill vandræðagangur allan tímann sem málið hefur verið í vinnslu. Maður sá það á þeim 27 umsögnum sem bárust inn í samráðsgátt stjórnvalda þar sem málið lá til umsagnar á fyrri stigum að það virðast miklar efasemdir um að hér sé verið að slá skynsamlegan tón hvað það varðar að styðja við innlenda fjölmiðlun, sérstaklega einkafjölmiðlana. Ég held að það væri betur heima setið en af stað farið núna og menn reyndu að vinna málið betur og kannski koma með fyllri útfærslur sem meiri sátt væri um, sérstaklega gagnvart þeim sem lausnirnar beinast að, því að efasemdir um málið dyljast engum sem skoðuðu þær umsagnir sem fram komu í samráðsgáttinni. Þar virðast efasemdirnar vera uppi en við sjáum til hvernig málið verður unnið núna í nefnd.
Það sem margir hafa kallað fílinn í stofunni hafa sumir kallað bleika fílinn en ég ætla nú bara að kalla það Ríkisútvarpið. Það sem kemur mest á óvart er hversu lítið er í rauninni tekist á við Ríkisútvarpið, aðstöðu þess og yfirburðastöðu á fjölmiðlamarkaði í frumvarpinu. Ef Ríkisútvarpið nýtur þeirrar yfirburðarstöðu og þess frelsis sem það hefur haft á auglýsingamarkaði áfram verður brekkan væntanlega áfram býsna brött fyrir einkareknu miðlana. Ég held að það þurfi ekki annað en að fara í gegnum umsagnir þeirra miðla sem hafa stærstu fréttastofurnar á innlendum markaði til að það blasi við að rétti tónninn er ekki sleginn í þessu frumvarpi. Það eru nefnilega til aðrar leiðir sem ég ætla að leyfa mér að fara aðeins inn á.
Í fyrsta lagi ætla ég að fara yfir það sem við í Miðflokknum höfum lagt til til lausnar í þessu máli hvað varðar yfirburðastöðu Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði á sama tíma og við styðjum við innlenda frjálsa fjölmiðlun og innlenda dagskrárgerð. Síðan hafa tilteknir þingmenn Sjálfstæðisflokksins komið fram með prýðilegar hugmyndir. Ég held að einhvers lags sambland þessara tveggja þátta úr því samansafni hugmynda sem hafa komið úr þessum tveimur áttum myndi grunda mun betri nálgun sem styddi öflugar við innlenda einkamiðla á sama tíma og fíllinn í stofunni yrði settur í rækilega megrun. Þeir fjármunir, sennilega á sjöunda milljarð núna, sem Ríkisútvarpið hefur úr að spila, annars vegar með ríkisframlögum og hins vegar vegna tekna á auglýsingamarkaði, gera þennan slag svo ójafnan að einkareknu miðlarnir eiga engan séns.
Ef ég tæpi aðeins á þeim sjónarmiðum sem Miðflokkurinn setti fram nýlega í tillögu að lausn þessara mála er tillagan tvíþætt. Annars vegar gengur hún út á að skattgreiðendur, almenningur, fái að velja á skattframtali hvers árs til hvaða fjölmiðils þeir beina útvarpsgjaldi sínu. Áheyrendur vita hvað ég á við með þeirri vísan. Í tillögu okkar er útfært hvernig þetta myndi trappast upp að ákveðnu þaki en þarna gæfist almenningi í fyrsta lagi kostur á að beina stuðningi sínum til þeirra miðla sem þeir vilja — það þarf ekki að vera einn, það geta verið fleiri miðlar. Menn gætu hakað við t.d. tvo, þrjá miðla á skattskýrslu og miðlarnir myndu njóta þess á komandi ári. Með þessu næðist að stýra stuðningi í þá átt sem almenningur metur mest hverju sinni á sama tíma og yfirburðastaða Ríkisútvarpsins væri tröppuð niður hægt og rólega. Enginn ofsi.
Hitt atriðið sem við í Miðflokknum lögðum til snýr að auglýsingastöðu Ríkisútvarpsins. Þar hafa komið fram sjónarmið sem snúa að því að fari Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði verði í fyrsta lagi erfitt að ná til tiltekinna aðila, tiltekinna hópa, og hins vegar hafa komið fram áhyggjur af því að þær auglýsingatekjur sem ekki færu til Ríkisútvarpsins færu ekki endilega til annarra innlendra miðla. Tillaga okkar í Miðflokknum gengur út á að Ríkisútvarpið verði áfram á auglýsingamarkaði en að helmingur tekna Ríkisútvarpsins af auglýsingum og kostun fari í sjóð til stuðnings innlendri dagskrárgerð sem yrði samkeppnissjóður sem myndi styðja myndarlega við innlenda dagskrárgerð sem gæti síðan verið áfram til sýningar eftir þeim reglum sem þar um giltu, bæði hér á innlendum sjónvarpsmarkaði og erlendis, eftir atvikum. Þarna held ég að við séum búnir að finna lausn, nálgun þar sem við forðumst þá ríkisvæðingu fjölmiðlanna sem nú er verið að leggja til en náum á sama tíma að styðja myndarlega við innlenda dagskrárgerð, styðja við innlenda einkarekna fjölmiðla og draga úr yfirburðastöðu RÚV, allt bara í hóflegum skrefum en samt þannig að staðan á fjölmiðlamarkaði yrði öll önnur að tveimur til þremur árum liðnum en við horfum upp á í dag.
Ég held að hv. þm. Páll Magnússon sé næstur í pontu þannig að ég ætla að eftirláta honum að fara yfir þær prýðishugmyndir sem mér sýndist koma fram. Ég man ekki hvort hv. þingmaður talaði fyrir þeim hugmyndum sem ég sá fréttir fluttar af sem gengu út á að beita skattkerfinu með þeim hætti sem til að mynda kemur fram í tilteknum umsögnum og hefur verið gert víðar. Ég held að þarna tækist aftur að búa til einfaldara kerfi heldur en það sem er verið að búa til núna, kerfi ákveðinnar ríkisvæðingar þar sem allt kallar á sérstakt eftirlit og bætir við flækjustigið sem ég er sannfærður um að litlu fjölmiðlarnir sérstaklega munu vel geta verið án. Það er nú einhvern veginn þannig og við þekkjum það öll sem hér erum að íþyngjandi regluverk, eftirlit og það að þurfa að smeygja sér í jakka sem ríkið réttir viðkomandi rekstraraðila, verður aldrei til góðs. Þetta vildi ég nú segja um þessar tvær nálganir, auðvitað með áherslu á nálgun okkar Miðflokksfólks, og vona þá að þingmenn Sjálfstæðisflokksins fari í ítarlegra máli yfir sín sjónarmið á eftir.
Í tillögunum sjálfum eru auðvitað atriði sem vekja strax verulegar efasemdir og mig langar bara að nefna eitt. Svo að allrar sanngirni sé gætt eru ekki nema þrjár stórar ritstjórnir sem starfa á einkamarkaði í dag. Það er Morgunblaðið, Fréttablaðið og fréttastofa Stöðvar 2. Fleirum er ekki til að dreifa. Ef þetta þak sem fjallað er um í frumvarpinu, sem ég vona reyndar að fái þannig hanteringu í nefndinni að málinu verði breytt mjög verulega, verður til staðar, þá held ég að spilunum sé býsna ójafnt skipt, þ.e. þeim fjármunum sem úr er að spila, ef þessar þrjár stóru ritstjórnir þurfa að einhverju marki að troða sér í þann sama jakka og minni fjölmiðlarnir þurfa að gera. Ég vil beina því til nefndarinnar að þetta atriði verði sérstaklega skoðað með það í huga að nefndin hverfi frá því, verði ekki aðrar útfærslur sem ganga lengra til þess að málinu verði breytt á enn drastískari máta.
Að endingu vil ég segja að eins og tillögur okkar í Miðflokknum bera með sér teljum við þetta nauðsynlega aðgerð, þ.e. að styðja við einkarekna, innlenda fjölmiðla. Við teljum nauðsynlegt að draga úr yfirburðarstöðu Ríkisútvarpsins og við teljum skynsamlegt margra hluta vegna að styðja við innlenda dagskrárgerð. Við erum búnir að leggja fram tillögu sem hakar í öll þessi box, tillögu sem ég held að allir aðilar á markaði ættu að geta unað nokkuð vel við. Mestu efasemdirnar koma eflaust úr þeirri átt þar sem Ríkisútvarpið missir spón úr aski sínum en það er engu að síður sett fram svo hóflega að ég trúi ekki öðru en að Ríkisútvarpið geti aðlagað sig að þeim veruleika að hafa ekki á sjöunda milljarð úr að spila heldur eitthvað örlítið lægri tölu, þótt hún sé ekki sett niður úr öllu valdi.
Þetta er það sem ég vildi segja á þessu stigi málsins áður en málinu verður vísað til nefndar og við sem hér erum förum í jólaleyfi, eftir morgundaginn. En ég vil bara brýna nefndina til að nálgast málið með opnum huga fyrir öllum breytingum, gjörbreytingu á málinu ef það bætir það, og sérstaklega vil ég að við forðumst að ríkisvæða innlenda, einkarekna fjölmiðlakerfið eins og hér er lagt upp með.