fjölmiðlar.
Forseti. Ég starfaði lengi á fjölmiðlum og þá kom vissulega fyrir að maður þurfti að vitna í aðra fjölmiðla og góða vinnu annarra fréttamanna sem þar höfðu skilað sinni vinnu. Þá hafði maður þá gullnu reglu að vísa til þeirrar ágætu vinnu, þeirra frumheimilda sem þar hafði verið unnin. Nú er ég búinn að hlusta á tvo hv. þingmenn Miðflokksins fjalla um þessa hugmynd sína sem einn þeirra kallaði hér fyrr í kvöld að leyfa skattgreiðendum að kjósa með fótunum, þ.e. merkja við á skattskýrsluna. Mér leið um tíma eins og ég væri að hlusta á Davíð Oddsson, fyrrverandi hv. þingmann, því að hann talaði mjög fyrir þessari tillögu. En hvorugan þeirra heyrði ég nú geta uppruna tillögunnar heldur börðu þeir sér dálítið í brjósti um að þetta væri tillaga Miðflokksins. Ég hvet hv. þingmann til að geta uppruna heimilda sinna eins og við gerðum á ritstjórnum og þótti sjálfsögð kurteisi að gera.
Mig langar að spyrja hv. þingmann aðeins út í þessa tillögu hans. Ég get ekki skilið hv. þingmann öðruvísi en svo að ég og hann séum ekki með alveg sömu hugmyndir um hvað Ríkisútvarpið sé. Mínar hugmyndir byggja á lögum um Ríkisútvarpið en hv. þingmaður virðist aðeins tala um fréttahluta þeirrar stofnunar. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í þá tillögu að menn geti merkt við á skattskýrslu um stuðning við þá menningarstofnun sem RÚV er, hvort Miðflokkurinn telji að það muni eiga við fleiri menningarstofnanir. Eiga skattgreiðendur að velja hvaða leikhús fær styrk? Eiga skattgreiðendur að velja hvaða dansflokkur fær styrkinn o.s.frv.? Eða telur hv. þingmaður, eins og ég hef lesið Miðflokkinn, að hann vilji efla íslenska þjóðmenningu, að einstaka menningarstofnanir eigi að vera þjóðmenningarstofnanir, t.d. Þjóðleikhúsið eða listdansflokkur — og ríkisútvarp?