fjölmiðlar.
Frú forseti. Ef ég legg einhvern tíma fram tillögu um að skattgreiðendur fái að velja til hvaða menningarstofnunar, leikhúss eða dansflokks þeir vilji verja sínum skattpeningum mun ég gæta þess rækilega að eigna hugmyndina hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé, með vísan í frumheimildir eins og hv. þingmaður kom inn á. En ég vil nú segja strax: Ég held að ég hafi ekki nefnt fréttastofu Ríkisútvarpsins einu orði í ræðu minni. Ég er bara nokkuð viss um að svo er ekki. En ef hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé skynjar ekki né upplifir þá yfirburðastöðu sem Ríkisútvarpið er í, og þar með fréttastofa Ríkisútvarpsins, þá verðum við félagarnir nú sennilega bara að lifa með því að við skynjum Ríkisútvarpið hvor með sínum hætti. Ég held að allir á þessum markaði sem ekki starfa í Efstaleitinu upplifi það á eigin skinni að yfirburðastaða þeirrar stofnunar hefur sitt að segja.
Hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé vísaði í að hugmyndin um að skattgreiðendur fengju að velja hvert útvarpsgjaldið færi væri upphaflega komið inn frá fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi ritstjóra Morgunblaðsins, Davíð Oddssyni. Það er ekki til að gera hana verri, það er ljóst. Ég skal halda því til haga og ég hafði bara hreinlega ekki áttað mig á því. Auðvitað eru hugmyndir nefndar og maður man úr þeim úr kosmóinu, ef svo má segja, en ég hafði ekki eyrnamerkt hana sérstaklega fyrrverandi forsætisráðherra okkar, hinum góða manni Davíð Oddssyni, en ég kannski geri það hér eftir. Það er auðvitað þannig að í tillögum Miðflokksins eru útfærslur á þessu til viðbótar við prinsippákvörðunina um að leyfa skattgreiðendum að stýra sínum stuðningi sjálfum því það þarf útfærslu á slíkum hugmyndum og hún er í tillögum okkar.