150. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2019.

fjölmiðlar.

458. mál
[22:34]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Forseti. Það kemur mér á óvart að ég sé að segja hv. þingmanni með sína ágætu sögu í Sjálfstæðisflokknum frá því sem einhverjum tíðindum að þessi hugmynd komi frá Davíð Oddssyni. Það er fínt að hann og Miðflokkurinn muni eigna ritstjóra Morgunblaðsins þessa hugmynd héðan í frá. Hann má vera stoltur af því eða ekki. Ég hef ekki skoðun á því. Ég var bara að rifja upp hvaðan þessi hugmynd kæmi og rifja upp þá gullnu reglu okkar fréttamanna, núverandi og fyrrverandi, að geta frumheimilda.

Önnur gullin regla er að segja satt og heiðarlega frá því sem aðrir segja, t.d. þingmenn. Ég hefði ekki í mínum störfum sem fréttastjóri hleypt endursögn hv. þingmanns á því sem ég sagði í blaðið þegar ég vann þar því að slík var afbökunin á mínum orðum hér. Hugmynd mín um RÚV var einföld spurning til hv. þingmanns um hvort skattgreiðendur gætu valið um aðrar menningarstofnanir því að það hlýtur að vera eðlileg spurning. Ef það gildir um eina menningarstofnun, af hverju gildir það þá ekki um aðrar?

Það er rétt hjá hv. þingmanni, held ég, ég játa að ég man ekki hvert einasta orð í ræðu hans, að hann hafi ekki nefnt fréttastofu RÚV einu orði. Það er akkúrat það sem er. Því að hvernig hv. þingmaður talar um RÚV er bara um samkeppni RÚV við aðra fjölmiðla sem sinna fréttaöflun og -miðlun. Mig langar að spyrja hv. þingmann hve stór hluti af rekstri RÚV fari í þá fréttastofu sem er í hvað mestri samkeppni. Og áfram langar mig að spyrja út í ræðu hv. þingmanns sem talar um að ríkisvæða einkarekna fjölmiðla, verði þessi styrkur að veruleika, þessi fína hugmynd hæstv. menntamálaráðherra: Telur hv. þingmaður að aðrir fjölmiðlar, t.d. á Norðurlöndunum, sem njóta slíks stuðnings séu ríkisvæddir?