fjölmiðlar.
Frú forseti. Til að svara andsvari hv. þm. Kolbeins Óttarssonar Proppé vil ég fyrst segja, fyrst þingmaðurinn velur þá leið að okkur þingmönnum á löggjafarsamkundunni væri betra að haga máli okkar þannig að samræmdist verkreglum blaðamanna, að þegar Vinstri grænum þingmönnum dettur til hugar að hækka skatta, þá er það bara hugmynd þess Vinstri græna þingmanns hverju sinni. Það er ekkert vera að vísa í einhverja gamla vinstri sinnaða hagfræðinga. Það verður flókið (Gripið fram í.) að halda utan um ef menn þurfa að fara í þá áttina.
Síðan setti hv. þingmaður fram spurningu um hvort ég sæi fyrir mér að það sama ætti við um aðrar menningarstofnanir. Ég hélt að ég hefði svarað því í fyrra andsvari mínu. Ég er ekki kominn á þann stað en það má vel vera að það þætti skynsamlegt á einhverjum tímapunkti. Þær hugmyndir hafi ekki verið útfærðar og eru ekki hluti af þessum tillögum frá okkur í Miðflokknum.
Bíddu nú við. Það var þriðja spurningin. Ef hv. þingmaður hjálpar mér með hana, ef hann man hver hún var. (KÓP: Um ríkisvæðingu fjölmiðla.) Já, um ríkisvæðingu fjölmiðlanna. Ég hef ekki forsendur til að meta þessa norrænu fjölmiðla sem mér heyrðist þingmaðurinn vísa til, hvort ég mæti þá sem slíka á grundvelli þess að þessar reglur næðu yfir fjölmiðlamarkaðinn þar. Það er vinna sem mun örugglega eiga sér stað í nefndinni núna en á þessum tímapunkti þekki ég það ekki og met það sem svo að hvað mig varðar skipti það ekki öllu máli. Við verðum fyrst og fremst að horfa á það sem er að gerast gagnvart innlenda markaðnum. Þar þarf náttúrlega enginn að velkjast í vafa um að almennu miðlarnir eru t.d. á auglýsingamarkaðnum að keppa við Ríkisútvarpið. Ekki bara fréttastofuna. Það var nú bara umræða um það (Forseti hringir.) í fyrrasumar þegar auglýsingadeild Ríkisútvarpsins var sögð hafa ryksugað upp auglýsingamarkaðinn í kringum heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Þannig að þetta eru ekkert bara auglýsingar á undan samlesnum fréttatímum (Forseti hringir.) Rásar 2 og Rásar 1. Þetta á við um alla dagskrána.
(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða tímamörkin.)