150. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2019.

fjölmiðlar.

458. mál
[22:47]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég er í hópi þeirra þingmanna sem eru ekki sannfærðir um að þetta sé rétta lausnin á vanda einkarekinna fjölmiðla, þó svo að sá vandi sé vissulega fyrir hendi. Ég get alveg tekið undir áhyggjur sem hafa verið viðraðar hér í umræðunni í kvöld, m.a. af því hversu frjálsir og óháðir fjölmiðlar séu ef þeir eru allir komnir á framlög frá hinu opinbera, ég tala nú ekki um framlag sem er í raun háð jafnvel ákvörðunum ráðherra hverju sinni, hvaða fjárhæð renni til. Það er auðvitað eðli þess þegar styrkjum sem þessum er markaður rammi í fjárlögum að þann ramma er líka hægt að skerða. Það má velta því fyrir sér hvort það þurfi ekki að girða fyrir að það geti verið einhvers konar geðþóttaákvarðanir.

En ég hafði eiginlega enn meiri áhyggjur af orðum hv. þm. Páls Magnússonar þegar hann fór að velta upp þeirri spurningu hvað væri fjölmiðil og hvað væri raunveruleg fréttastofa í samanburði við, eins og hv. þingmaður orðaði það, einhvers konar bloggsíðu. Ég held við verðum fyrst komin á hálar brautir ef við ætluðum að fara út í verulega matskenndar ákvarðanir á því hverjir skuli teljast til mögulegra styrkþega og hvaða fjölmiðlar ekki. Ég verð að viðurkenna að ég óttast mjög í þessari umræðu, af því að það hefur gjarnan einkennt þingmenn ákveðinna flokka að gagnrýna valda fjölmiðla af því að þeim líkar ekki fréttaflutningurinn, að þeir geti síðan valið fjölmiðlana eftir hentugleika. RÚV hefur vissulega verið skotspónn slíkrar gagnrýni í gegnum tíðina og fjölmargir aðrir fjölmiðlar líka.

Er hv. þingmanni virkilega alvara með því að ríkið ætti að fara að segja til um það hvað teljist til fjölmiðla og hvað ekki í þessum samanburði?