fjölmiðlar.
Virðulegi forseti. Já, hv. þm. Þorsteinn Víglundsson, mér er nefnilega full alvara með því, enda sé ég ekki hvernig við ættum að komast að raun um það með hvaða hætti og hvort við ættum að styrkja einkarekna fjölmiðla án þess að skilgreina hvað fjölmiðill er. Það er einmitt gert í frumvarpinu. Nálgunin er þar fréttatengt efni, ritstjórn fréttatengds efnis og ritstjórnarefni. Ég held að það megi öllum vera ljóst hver er munurinn á t.d. bloggsíðu sem er bara vettvangur þess sem hana á og rekur til að segja skoðanir sínar. Blogg.is er t.d. partur af Morgunblaðinu. Myndum við líta á blogg.is sem sjálfstætt starfandi fjölmiðil ef hann væri einn? Ef t.d. allir þeir sem segja skoðanir sínar inni á blogg.is kæmu saman, myndum við líta á það sem styrkhæfan fjölmiðil? Ekki samkvæmt þeim skilgreiningum, greiningum og viðmiðunum sem eru í frumvarpi hæstv. menntamálaráðherra og ekki samkvæmt þeim skilgreiningum og viðmiðunum sem gerðar eru í lögum um sams konar styrki á Norðurlöndunum sem vitnað var til og er vitnað til í greinargerð hæstv. menntamálaráðherra. Til þess að styrkja eða taka ákvörðun um að styrkja einkarekna fjölmiðla með einhverjum hætti með aðkomu ríkisins verðum við auðvitað að skilgreina hvað er fjölmiðill í þeim skilningi sem við viljum styrkja og styðja.