fjölmiðlar.
Frú forseti. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að í frumvarpinu er einmitt gerð tilraun til að skilgreina hvað fjölmiðill sé út frá hlutlægum mælikvörðum eins og fjölda starfsmanna, tíðni útgáfu o.s.frv., en ekki efnisinnihaldi. Það er það sem ég óttaðist dálítið í orðum þingmannsins, að hann væri ekki sáttur við þá hlutlægu skilgreiningu og vildi í raun og veru taka fastar utan um efnistök eða innihald fjölmiðla, sem ég vona svo sannarlega að sé misskilningur af minni hálfu því að þá værum við virkilega komin út á hálan ís.
Annað sem ég hnaut um í orðum hv. þingmanns er varðandi umræðuna um að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. Nú er auðvitað alveg ljóst að þetta frumvarp tekur ekki með neinum hætti á stóra vandanum sem er auðvitað að við erum að styrkja einn fjölmiðil verulega sem skekkir samkeppnisstöðu allra annarra fjölmiðla á markaði. Mér finnst viðfangsefnið í þessu máli vera: Hvernig getum við dregið úr þeirri samkeppnisskekkju sem hinn mikli ríkisstyrkur til RÚV veldur án þess að draga úr t.d. fjárveitingum til innlendrar dagskrárgerðar, almennrar fréttavinnslu og annars þess háttar? Það væri kannski hægt að gera það í gegnum einhverja samkeppnissjóði. Að hleypa öðrum fjölmiðlum að styrkjum og þar með talið RÚV líka. Það væri hægt að nýta þetta fjármagn og hluta þess fjármagns sem rennur til RÚV í dag í einhverja slíka samkeppnissjóði. En ég velti aðeins fyrir mér skynseminni við að kippa RÚV út af auglýsingamarkaði, sér í lagi ef slík aðgerð á að fela í sér að það eigi að auka ríkisframlagið til RÚV krónu fyrir krónu á móti. Auglýsendur hafa bent á að það væri langt í frá sjálfgefið að það auglýsingafé sem rennur til RÚV í dag myndi renna til annarra innlendra fjölmiðla ef RÚV yrði tekið af auglýsingamarkaði heldur gæti það allt eins runnið til erlendra veitna. Ég hefði áhuga á að heyra hvað hv. þingmanni finnst um þá umræðu.