150. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2019.

fjölmiðlar.

458. mál
[23:04]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Hér er til umfjöllunar frumvarp til laga frá hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra um breytingu á lögum um fjölmiðla. Mig langar örstutt að grípa niður í h-lið, undir heitinu Skilyrði fyrir endurgreiðslu á kostnaði, en þar stendur, með leyfi forseta:

„Einn sjötti hluti ritstjórnarefnis sem birtist í prent- og netmiðlum skal byggjast á sjálfstæðri frétta- eða heimildaöflun. Sama gildir um fréttir, fréttatengt efni og umfjöllun um samfélagsleg málefni sem miðlað er af hljóð- og myndmiðlum og öðrum sambærilegum miðlum.“

Mig langaði sérstaklega koma inn á þetta vegna þess að ég get ekki með góðu móti séð hvernig eftirliti með h-lið verði háttað og hvernig sú vöktun eigi sér stað að rekja hverja og eina frétt sem birtist á hverjum og einum miðli.

Herra forseti. Mig langar líka að grípa niður á öðrum stað. Hér hafa þeir sem talað hafa á undan mér talsvert verið að ræða tölur í þessu samhengi og það segir í greinargerð, með leyfi forseta:

„Á árinu 2016 námu tekjur fjölmiðla um 29 milljörðum króna. Af þeim tekjum runnu um 21,2 milljarðar króna til fjölmiðla í einkaeigu en 5,8 milljarðar króna til Ríkisútvarpsins. Hlutur Ríkisútvarpsins af heildartekjum fjölmiðla nam því um 21 af hundraði árið 2016. Árið 2016 nam hlutdeild Ríkisútvarpsins í auglýsingatekjum allra fjölmiðla um 15% en að meðaltali um 38% af auglýsingatekjum hljóð- og myndmiðla.“

Í þessum tölum held ég að megi finna ástæðu þess hversu margir sem talað hafa á undan mér hafa nefnt fílinn, ýmist bleikan eða ekki, herra forseti. Ég hef aðeins lítillega drepið á innihald frumvarps hæstv. ráðherra til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla. Það er ekki vafi í mínum huga að hæstv. ráðherra, sem og við flest, vill tryggja rekstrargrundvöll einkarekinna miðla og þannig stuðla að fjölbreyttri flóru mynd-, hljóð- og prentmiðla. Einmitt þess vegna kemur mér á óvart að í tilraun til að efla slíka flóru skuli, að því er best verður séð, markvisst reynt að komast hjá því sem blasir við öllum sem hafa kynnt sér tekjudreifingu á fjölmiðlamarkaði og eftir atvikum stærð og yfirbyggingu miðlanna sjálfra. Frumvarpið er vafalítið sett fram af góðum hug, eins og áður segir, en er því miður í stóra samhenginu hvorki fugl né fiskur eða í það minnsta ákaflega rýrt í roðinu. Þetta frumvarp, vinnsla þess og öll nálgun hæstv. ráðherra, virðist mér bera nokkuð sterkan keim af því að ekki megi hrófla neitt við RÚV sem virðist vera orðið nokkurs konar ríki í ríkinu — eða, eins og hefur borið hér á góma, fíllinn í stofunni. Það verður ekki fram hjá því litið, herra forseti, að ekki verður stuðlað að raunverulegri bragarbót á rekstrarumhverfi fjölmiðla nema ráðherra hafi kjark til að takast á við fílinn. Á meðan fíllinn er á fullum fóðrum mun hann alltaf vera í aðstöðu til að aféta alla þá sem keppa við hann um fóðrið, óháð minni háttar aðgerðum. Þær aðferðir og sú aðferðafræði sem hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra boðar í frumvarpi því sem hér er til umræðu tel ég því miður ekki munu valda neinum vatnaskilum í rekstrarumhverfi einkarekinna miðla. Þvert á móti sýnist mér hér vera um að ræða mál þar sem allt er lagt í sölurnar til að grípa ekki til þeirra aðgerða sem blasir við að verða ekki umflúnar. Ef raunverulegur vilji stendur til að bæta rekstrarlega stöðu einkarekinna miðla, hví er þá frekar valið að fara í flóknar aðgerðir sem fela í sér talsverðan kostnað við eftirlit og úthlutun, sem raunar, er svo sanngirni sé gætt, inni í tölunni sem nefnd er í frumvarpinu?

Þannig má álykta sem svo að frumvarpið stuðli að stækkun eftirlitshluta hins opinbera með tilheyrandi kostnaði. Það er því orðið að mati þess sem hér stendur alveg kýrskýrt að öll nálgun hæstv. ríkisstjórnar í viðleitni sinni til að efla einkarekna fjölmiðla á markaði markast af því að þurfa ekki að hrófla við fílnum, sem ekki þarf að víkja frá ríkisjötunni. Frekar er valið að fjölga jötunum og sletta í þær einhverju hrati sem aðilum á markaði gefst tækifæri á að éta úr að uppfylltum alls konar skilyrðum sem verða auk þess að falla nefndinni í geð.

Hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra hlýtur að fara fram með þetta frumvarp til laga í umboði ríkisstjórnarinnar. Það hlýtur að vekja undrun að Sjálfstæðisflokkurinn skuli leggja blessun sína yfir þá aðferðafræði að búa til enn eitt opinbert styrkjakerfið fremur en að ráðast að rót vandans sem að mati þess sem hér stendur er sú einfalda staðreynd að ekki er til staðar pólitískur kjarkur til að draga úr stærð RÚV á markaði. Það má þá væntanlega draga af þessu öllu þá ályktun. Engu skiptir þótt skrifaður yrði fjöldinn allur af þverhandarþykkum skýrslum sem sýndu fram á að flestum er ljóst að stærð RÚV er grunnvandi málsins — hér yrði allt gert til að takast ekki á við þann grunnvanda. Það er öllum trixum beitt til að þurfa ekki að fara í RÚV. Þess vegna hlýt ég að draga líka þá ályktun að pólitísk sýn í þessu markist af ótta við viðbrögð Ríkisútvarpsins.

Herra forseti. Ég ætla að endurtaka síðustu setninguna: Hin pólitíska sýn markast af ótta við Ríkisútvarpið.