150. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2019.

fjölmiðlar.

458. mál
[23:13]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Virðulegur forseti. Við fjöllum hér um frumvarp sem beðið hefur verið eftir með nokkurri óþreyju. Það er ekki óumdeilt og inn í umræðuna blandast ýmislegt. Það er hinn stóri, vandaði og mikilvægi ríkisfjölmiðil, Ríkisútvarpið, sem ber höfuð og herðar yfir alla fjölmiðla á Íslandi, bæði að stærð og gæðum, og enginn vildi án Ríkisútvarpsins vera, trúi ég, þegar á reynir þó að menn takist töluvert á um rekstrarformið eða starfsemisformið. Menn takast á um tekjurnar, menn takast á um fjármögnunina og eflaust þurfum við að fella það í nánari skorður og ekki að loka neinum dyrum að því leyti. Það að tala um bleika fílinn í stofunni finnst mér vera dálítið miklar ýkjur. Við vitum alveg um hvað málið snýst. Við þurfum á öflugum fjölmiðli eins og Ríkisútvarpinu að halda og það er sama hvar menn standa í flokki, við myndum ekki vilja sjá á eftir honum þegar á reynir.

Það frumvarp sem við erum að fjalla um hér hefur verið í deiglunni um hríð og birtist okkur núna um síðir. Það verður að játa að það er nokkuð rýrara í roðinu en efni stóðu til sem er miður en því ber að halda til haga að við skynjum, a.m.k. ég, að hæstv. ráðherra hefur mikinn metnað gagnvart þessu málefni, að keyra það áfram, og að ráðherra hefur skilning á þeim aðstæðum sem fjölmiðlarnir búa við á Íslandi. Ég er uppteknastur af landsbyggðarfjölmiðlum og minn útgangspunktur í þessari stuttu ræðu verður landsbyggðarfjölmiðlarnir og það sem snýr að þeim. Með þessu frumvarpi er verið að búa þannig um hnútana að einkareknir fjölmiðlar fái stuðning tímabundið í formi endurgreiðslu á hluta kostnaðar sem til fellur við að afla og miðla efni samkvæmt því sem lögin segja til um. Þetta er tímabundin endurgreiðsla, ég geri ráð fyrir að við séum bundin samevrópskum lagabálki sem skilgreinir þetta sem ríkisstuðning og það verður sjálfsagt að gerast undir ákveðnum formerkjum.

Virðulegur forseti. Hefðbundinn rekstrargrundvöllur flestra einkarekinna fjölmiðla, a.m.k. minni fjölmiðlanna á landsbyggðinni, virðist vera brostinn. Ástæðurnar eru nokkrar. Það hafa orðið gríðarlegar tæknibreytingar á allra síðustu árum, auglýsingatekjur hafa dregist saman, fyrirtæki eru farin að haga markaðssetningu með fjölbreytilegri hætti og með allt öðrum brag en áður. Þá hafa, eins og fram hefur komið, erlendar efnisveitur gert sig æ meira gildandi á innlendum samkeppnismarkaði þegar um fjölmiðla er að ræða og miðlunaraðferðirnar eru orðnar af öllu tagi. Auglýsingaviðskiptin færast stöðugt meira til erlendra stórfyrirtækja á kostnað hefðbundinna einkarekinna fjölmiðla. Þessir hefðbundnu einkareknu fjölmiðlar bera skarðan hlut frá borði í auglýsingatekjum sínum svo jaðrar við hreint hrun.

Virðulegur forseti. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það á þessum vettvangi hversu dýrmætu hlutverki fjölmiðlar gegna í lýðræðissamfélagi. Á það hafa svo sem ráðherra og fleiri bent í þessari umræðu. Þeir flytja fréttir af líðandi stund, nær og fjær, og eru vettvangur fjölbreyttra skoðanaskipta um dægurmál og þjóðfélagslega mikilvæg mál hverju sinni og stuðla þannig með upplýsingamiðlun að opinni og upplýstri umræðu og samfélagslegri þekkingu, þátttöku og ábyrgð sem hvert einasta velferðarsamfélag þarf á að halda og reisir sitt skipulag í rauninni á. Lýðræðislegar kosningar eru dæmi. Þessir fjölmiðlar rýna og upplýsa. Þetta er mikilvægt, hvort heldur í hlut eiga staðbundnir miðlar eða stærri fjölmiðlar. Breytingar á umhverfi fjölmiðla geta þannig haft gríðarleg bein áhrif og því verður mikilvægi fréttamiðlunar óháðra, frjálsra, einkarekinna fjölmiðla seint ofmetið.

Þá hefur það ekki verið nefnt, sem er gríðarlega mikilvægt atriði, þar sem einkareknir fjölmiðlar gegna ásamt með öðru mikilvægu hlutverki, en það er að fjalla um tungumálið, meðferð málsins, íslenska tungu. Þar hafa fjölmiðlarnir jafnframt miklu hlutverki að gegna við að viðhalda, efla, standa vörð um og vernda íslenska tungu sem á stöðugt meira undir högg að sækja. Mér býður í grun að hæstv. ráðherra hafi þetta líka í huga, enda hefur hún haft á þessu orð.

Með því frumvarpi sem hér er lagt fram er svo sem ekki verið að feta neinar nýjar brautir. Við erum bara að taka þátt í sams konar verkefnum og t.d. Norðurlandaþjóðirnar hafa verið að velta fyrir sér. Þegar menn tala um fílinn í stofunni, sem er Ríkisútvarpið, eiga allar Evrópuþjóðirnar stórt og mikið ríkisútvarp og ríkissjónvarp og þessar þjóðir vilja ekki án þeirra vera. Þetta eru öflugustu menningarstöðvarnar í hverju landi. Hvernig þær eru reknar, hvernig þær eru fjármagnaðar — um það þurfum við að takast á enn frekar hér.

Frumvarp það sem við erum að fjalla um fangar það viðfangsefni hvernig hægt sé að efla einkarekna fjölmiðla í samfélagi nútímans, í nútímasamfélagi, og hvernig stjórnvöld geti með sínum hætti stuðlað að því án þess að sjálfstæði fjölmiðlanna og óhlutdrægni sé ógnað. Þetta hafa menn fjallað um svolítið hér í kvöld, hvort fjölmiðill sem nýtur ríkisstuðnings geti verið óhlutdrægur og hvort hann sé orðinn bundinn þeim sem tekur þátt í fjármögnun. Ég tel þetta langsótta skýringu. Við getum tekið til viðmiðunar ýmis dæmi úr samfélaginu til að hrekja þetta. Mér eru auðvitað hugstæðastir fjölmiðlarnir á landsbyggðinni. Ég þekki hlutskiptið, þekki við hvaða aðstæður þeir vinna og veit hversu mikilvægu hlutverki þeir gegna. Ég veit líka og þekki að þeir róa lífróður. Úthald þeirra er á þrotum og ef þá þrýtur örendið verður erfitt að snúa við. Við höfum enn þá tækifæri til að sporna við fótum og það ber að hvetja til þeirra ráða sem nú eru í deiglunni.

Fjölmiðlar í dreifbýli hafa mikilvægu hlutverki að gegna, bæði staðbundnu og á landsvísu. Þeir eru gjarnan eins konar gátt inn í samfélögin sem annars eru allt of mörgum hulin. Þrátt fyrir umbrot og nýja tækni gegna þeir enn mikilvægu hlutverki, sinna verkefnum sem frétta- og menningarmiðlar og eru kynningarvettvangur á sínu svæði. Þeir draga fram sérstöðu í byggðunum, halda á stundum uppi vörnum fyrir mikilvæg svæðisbundin hagsmunamál. Þessir fjölmiðlar eiga því miður mjög á brattann að sækja. Það eru æ fleiri miðlar í beinu eða óbeinu eignarhaldi fjármálaafla, fjárfesta eða stórra fyrirtækja á sínu starfssvæði eða á landsvísu. Þetta þekkjum við. Héraðsfréttablöðin berjast í bökkum, þau halda jafnvel úti vefútgáfum og eru hugsanlega líka áskriftarblöð. Á áskriftunum, segja mér þeir sem gefa út blöð á landsbyggðinni, byggja þeir líf sitt því að auglýsingar eru að bregðast þeim.

Við þekkjum líka ágæt dæmi um það að eiga sjónvarpsstöð á landsbyggðinni og það er ánægjulegt til þess að vita að hún sé á Akureyri. Hún vinnur að ýmislegri þáttagerð, fréttatengdu efni og vinnur ýmsan fróðleik, ekki bara úr Eyjafirði heldur allri landsbyggðinni. Sú sjónvarpsstöð berst í bökkum.

Dreifbýlisfjölmiðlarnir hafa gert tryggingagjaldið að umtalsefni í mín eyru, t.d. er hátt hlutfall af kostnaði í rekstri lítilla fjölmiðla tryggingagjaldið sem ríkið leggur á laun í öllum fyrirtækjum. Núverandi ríkisstjórn hefur lækkun almenna tryggingagjaldsins á dagskrá en það er sérstök umræða. Samfylkingin hefur lagt það til að sérstaklega verði komið til móts við lítil og meðalstór sprotafyrirtæki að þessu leyti.

Virðulegur forseti. Dreifbýlisfjölmiðlar reiða sig eins og aðrir á birtingu auglýsinga í sínum rekstri. Eins og fyrr er nefnt verður stöðugt þyngra undir fæti í þeim efnum. Fyrirtæki hafa í sinni þjónustu auglýsingastofur sem meta blákalt hvar helst sé að vænta hámarksávinnings af birtingu og þar er engin miskunn á ferðinni. Gildi birtingar í héraðsfréttablöðum er oft vanmetið því að þau eru víðlesin, eru lesin langt út fyrir sitt upprunalega útgáfusvæði í rauninni. Fjölmiðlamenn á landsbyggðinni eru mjög hugsi yfir því og reyndar verulega ósáttir við almenna stefnu opinberra stofnana eins og ríkisskattstjóra, ráðuneyta, heilbrigðisstofnana, skóla og annarra opinberra stofnana gagnvart auglýsingum í staðarmiðlum til að ná til allra landsmanna. Sum blaðanna segja að hið opinbera hafi ekki eina einustu auglýsingu á ársgrundvelli í þeirra fjölmiðlum. Þau segja að allt of mikið sé um að slíkar stofnanir, sérstaklega stofnanir í Reykjavík sem eiga samt að þjóna öllum landsmönnum, auglýsi einvörðungu í dagblöðunum sem hafa margfalt minni lestur á landsbyggðinni en staðbundnir fjölmiðlar. Íbúar á landsbyggðinni fara af þeim sökum jafnvel á mis við opinberar upplýsingar sem allir ættu að hafa aðgang að. Dagblöðin eru í dag, eins og landsbyggðarútgefendur orða það, fyrst og fremst héraðsfréttablöð höfuðborgarsvæðisins og útbreiðsla þeirra á landsbyggðinni er takmörkuð að þeirra mati. Á það hefur verið bent og um það fjallað í ræðu og riti, virðulegur forseti, m.a. á hinu háa Alþingi, að auka þurfi gegnsæi eignarhalds á fjölmiðlum og koma í veg fyrir samþjöppun eins og átt hefur sér stað á nýliðnum árum. Á bak við fyrirtæki eru jafnvel ósýnileg peningaöfl sem sækja fram með ofurafli. Við þekkjum dæmi um það.

Virðulegur forseti. Stoðir dreifbýlisfjölmiðla eru veikar. Einkareknir, hlutlausir og gagnlegir fjölmiðlar á landsbyggðinni eru orðnir máttvana og þeim mun snarfækka á næstu misserum og mánuðum verði þeim ekki hjálpað til lífs. Það er að mínu áliti hagur íbúa á landsbyggðinni, og þar með hagur allra landsmanna, að þeir hverfi ekki af markaði. Ef stjórnvöld vilja leggja sitt af mörkum til að tryggja áfram lýðræðisþróun og samfélagsumræðu í gegnum einkarekna landsbyggðarfjölmiðla styð ég eindregið að hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra gefi hvergi eftir heldur sjái til þess að stuðningur við hina einkareknu, ekki síst minni, landsbyggðarfjölmiðla verði talsverður og að ekki verði rýrður sá stuðningur heldur verði aftur bætt í eins og upphaflega var gert ráð fyrir og þar með tryggð áfram blómleg og metnaðarfull fjölmiðlun úr öllum kimum samfélagsins.