fjölmiðlar.
Herra forseti. Það frumvarp sem við ræðum hér gefur mér og öðrum þingmönnum almennt tilefni til að ræða um íslenska fjölmiðla í víðu samhengi. Ef það er vilji okkar þingmanna og stjórnvalda að styðja við fjölbreytni í fjölmiðlum, búa þannig um hnútana að einkareknir fjölmiðlar fái að þrífast, er ekki hægt að komast hjá því að skilgreina hlutverk og skyldur Ríkisútvarpsins, tryggja a.m.k. að ríkisrekstur í fjölmiðlum ryðji ekki einkareknum fjölmiðlum úr vegi. Ég hef orðað það þannig að við séum kannski að einhverju leyti í svipuðum sporum og læknir sem horfir á sjúklinginn og á um tvennt að velja, hann getur skorið meinið í burtu og komið sjúklingnum til heilbrigðis eða gefið honum verkjalyf í þeirri von að honum líði eitthvað betur en síðan líður verkun verkjalyfsins hjá.
Um það verður ekki deilt að sá hugur sem er að baki því frumvarpi sem við ræðum hér er góður og að því leyti fagna ég því að hæstv. ráðherra skuli leggja frumvarpið fram þó að ég hefði kosið að það væri efnislega töluvert öðruvísi. Að baki frumvarpinu er einlægur ásetningur um að grípa til aðgerða til að styrkja sjálfstæða miðla. Ég óttast hins vegar að frumvarpið nái ekki þeim tilgangi sínum.
Í október 2015 skilaði nefnd sem menntamálaráðherra hafði skipað skýrslu um starfsemi og rekstur Ríkisútvarpsins. Þar var varpað fram ákveðnum spurningum sem menn hafa því miður forðast að stærstu leyti að svara.
1. Er ohf. rekstrarformið heppilegt fyrir starfsemi Ríkisútvarpsins?
2. Á Ríkisútvarpið að vera á auglýsingamarkaði?
3. Er Ríkisútvarpið best til þess fallið að ná fram markmiðum sem snúa að íslenskri menningu, tungu og lýðræðisumræðu?
4. Er hægt að fá betri nýtingu á sameiginlegum fjármunum landsmanna, þ.e. útvarpsgjaldinu, en að láta þá renna til ríkisrekins fjölmiðils?
Efnisleg umræða um þessa skýrslu frá 2015 var mjög takmörkuð en ég fullyrði að þær spurningar sem var varpað fram eru jafn mikilvægar í dag og þær voru fyrir fjórum árum. Ég hef aldrei farið leynt með efasemdir mínar um réttmæti þess að ríkið eigi og reki fjölmiðlafyrirtæki. Ég geri mér hins vegar fyllilega grein fyrir því að seint verður sátt um að leggja niður ríkisrekstur á öldum ljósvakans. Ég geri ekki lítið úr einlægri sannfæringu margra, ekki bara hér inni heldur í samfélaginu, um nauðsyn þess að ríkið eigi og reki öflugan fjölmiðil til að standa við bakið á íslenskri menningu, listum, sögu og tungu og tryggja hér almennan öflugan fréttaflutning.
Í skugga þessa öfluga ríkisfyrirtækis er frjáls fjölmiðlun og hún stendur höllum fæti. Ég dáist satt að segja að þeim einstaklingum sem ákveða að hasla sér völl á þessum markaði og leggja allt í sölurnar í frekar ójöfnum leik. Hér skiptir engu máli hvort mér líki við efni viðkomandi miðils eða efnistök eða ritstjórnarstefnu. Ég held að fjölbreytni í fjölmiðlaflórunni sé eitt af því mikilvægasta sem við eigum að vinna að og þar með mismunandi efnistök, mismunandi sjónarhorn og mismunandi ritstjórnarstefna.
Í sérstökum umræðum sem fóru fram í janúar 2018 um stöðu einkarekinna fjölmiðla benti hv. þm. Þorsteinn Víglundsson á að kannski væru aðrar leiðir færar en ríkisrekstur til að styðja íslenska menningu, tungu og lýðræðisumræðu. Hann velti því fyrir sér hvort aðkoma ríkisins ætti frekar að vera í gegnum samkeppnissjóði en að reka fjölmiðil. Í sjálfu sér er þetta ekkert ólíkt þeirri nálgun sem hv. þm. Vilhjálmur Árnason var með áðan. Að sumu leyti er tillaga Þorsteins um samkeppnissjóð ekki ólík þeim hugmyndum sem ég varpaði fram árið 2010 í mjög langri grein, sem ég veit að allir þingmenn hér inni hafa lesið, og birtist í Þjóðmálum þar sem ég lagði til að öll spilin yrðu stokkuð upp og hlutverk Ríkisútvarpsins sniðið að breyttum aðstæðum, nýtt ríkisútvarp myndi hætta allri dagskrárgerð fyrir utan að reka öfluga fréttastofu en allt dagskrárefni útvarps og sjónvarps yrði keypt af sjálfstæðum framleiðendum fyrir utan kaup á erlendu hágæðaefni. Ég hygg að ef við færum þessa leið værum við að gefa eina mestu vítamínsprautu inn í rekstur sjálfstæðra framleiðenda, hvort heldur er í sjónvarpi eða útvarpi, og það sem meira er, það yrði úti um allt land.
Við þurfum að jafna leikinn og við þurfum að gera umhverfið heilbrigðara en það er. Nefnd um rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla skilaði á síðasta ári tillögum um aðgerðir í sjö liðum sem geta lagfært rekstrarskilyrði fjölmiðla að einhverju leyti. Tillögurnar voru svo sem ágætar en ég efast um að þær leggi grunn til lengri tíma að sjálfstæðum fjölmiðlum. Það er einlæg sannfæring mín að umhverfi sjálfstæðra fjölmiðla verði ekki heilbrigt fyrr en hlutverk Ríkisútvarpsins verði skilgreint að nýju og a.m.k. þeim fjórum spurningum sem ég varpaði fram áðan verði svarað og við sameinumst um það.
Ég er einn þeirra sem hafa ítrekað varað við hugmyndum um að búið sé til millifærslukerfi hins opinbera til að styðja við bakið á einstökum fyrirtækjum eða atvinnugreinum. Valkreppa mín og margra annarra er hins vegar að við eigum ekki marga kosti þegar kemur að því að styrkja sjálfstæða miðla, og kannski fáa góða.
Ég er hins vegar sannfærður um að skilvirkasta leiðin, samhliða því að skilgreina hlutverk og skyldur Ríkisútvarpsins og koma böndum á samkeppnisrekstur þess, sé lækkun skatta. Ég varpaði fyrir líklega einu eða tveimur árum fram þeirri hugmynd að það ætti að afnema virðisaukaskatt af áskrift fjölmiðla. Hugmyndin var langt í frá fullkomin og hennar helsti galli var að stór hluti einkarekinna fjölmiðla hefði ekki notið slíkra ívilnana með neinum hætti. Það er nefnilega þannig að ef við grípum til skattalegra ívilnana og teljum þær réttlætanlegar, sem er alltaf umdeilanlegt, verða þær að vera samræmdar og gagnsæjar og í þessu tilfelli verða allir einkareknir fjölmiðlar að sitja við sama borð og fá hlutfallslega sömu ívilnun.
Það er m.a. hægt með því að fella niður tryggingagjaldið. Með því fæst hlutfallslega sama lækkun á hvern fjölmiðil miðað við launakostnað. Skattaívilnunin er þá byggð á rekstri hvers og eins fjölmiðils. Það er hægt að setja þak á þessa ívilnun og miða við að hún nái ekki upp fyrir efra þrep, og efsta þrep í tekjuskatti á komandi ári. Þetta er ein leið sem við ættum að skoða.
Það er líka vert að við höfum í huga pínulitla sögu sem vill oft gleymast og var ástæða þess að ég lagði til að við skoðuðum það að fella niður virðisaukaskatt af áskriftum. Á árum áður voru áskriftir fjölmiðla án virðisaukaskatts. Þegar virðisaukaskattur var tekinn upp tók löggjafinn ákvörðun um það, árið 1988, að undanskilja áskriftir fjölmiðla. Sala dagblaða og landshlutablaða var undanskilin virðisaukaskatti. Þessu var breytt árið 1992 þegar nýtt lægra þrep virðisaukaskatts var tekið upp, þá 14%. Eftir þá breytingu lagðist virðisaukaskattur á bækur, blöð, tímarit og afnotagjöld útvarps og sjónvarps, þ.e. Ríkisútvarpsins, afnotagjöldin svokölluðu. Með lögum árið 2006 var þetta virðisaukaskattsþrep lækkað niður í 7%.
Þegar Ríkisútvarpið var gert að opinberu hlutafélagi árið 2007 og útvarpsgjaldið svokallaða innleitt var það undanskilið virðisaukaskatti en sjálfstæðir fjölmiðlar héldu áfram að bera virðisaukaskatt af sama stofni. Fjárlagaskrifstofa fjármálaráðuneytisins mat að virði þessarar ívilnunar væri um 130 milljónir og svo kom í ljós að hún var í rauninni meira virði vegna þess að Ríkisútvarpið gat nýtt sér kosti virðisaukaskattskerfisins með því að nýta innskattinn sem fjárlagaskrifstofan hafði ekki áttað sig á. Ætla má að ívilnun Ríkisútvarpsins vegna þess að afnotagjaldið er undanskilið virðisaukaskatti, það var búin til mismunun þar á milli árið 2007 þegar Ríkisútvarpið var gert að opinberu hlutafélagi, sé 500–600 milljónir. Þá er líka vert að hafa í huga að árið 2015 hækkuðum við virðisaukaskatt á áskriftir einkarekinna fjölmiðla úr 7% í 11%. Það var högg sem við verðum að kannast við.
Það er dálítið merkilegt þegar maður horfir yfir hvað er að gerast í Evrópu og hvernig menn búa til skattalegt umhverfi fyrir fjölmiðla í Evrópu að ekkert ríki í Evrópu lætur einkarekna fjölmiðla bera jafn háan virðisaukaskatt og við gerum á Íslandi á sölu viðkomandi miðils. Sum ríki hafa engan virðisaukaskatt á fjölmiðla, Frakkland er með innan við 3% og algengasta þrepið í Evrópu er að meðaltali á bilinu 4–9%. Það er umhugsunarefni.
Ég geng út frá því, virðulegi forseti, að hv. allsherjar- og menntamálanefnd fái þetta frumvarp (Forseti hringir.) til vinnslu og ég á von á því að margar umsagnir berist. Ég tel nauðsynlegt að nefndin skoði allar þær athugasemdir sem gerðar verða (Forseti hringir.) vegna þess að það er hægt að vinna úr þessu leið til að ná raunverulega því markmiði að styrkja sjálfstæða miðla.
(Forseti (ÞorS): Forseti minnir hv. þingmenn á tímamörk.)