150. löggjafarþing — 46. fundur,  17. des. 2019.

fjölmiðlar.

458. mál
[00:05]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er örugglega ekki í síðasta skipti sem ég og hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé skiptumst á skoðunum, hvort heldur er hér í þingsal eða annars staðar, um fjölmiðla. Ég sagði áðan að ég óttaðist að með því að innleiða styrkjakerfi eins og það lítur út hér værum við komin í spor læknisins sem forðast að skera meinið en gefur frekar litla verkjatöflu sem dugar í smátíma. En sjúklingurinn læknast ekki. Ég er að leggja áherslu á að við þurfum að fara í það verkefni að skilgreina hlutverk og skyldur Ríkisútvarpsins. Ég veit að það er ekkert feimnismál eða viðkvæmnismál fyrir hv. þingmann að taka þátt í þeirri vinnu. Það verður auðvitað að koma böndum á samkeppnisrekstur Ríkisútvarpsins og þá er ég fyrst og fremst að horfa til þess að Ríkisútvarpið skuli með beinum hætti höggva í helsta tekjugrunn sjálfstæðra miðla, ekki síst þeirra sem byggja ekki á áskriftartekjum eða t.d. blaðasölutekjum. Og það skiptir okkur máli þegar við erum að ræða um fjölmiðlaumhverfi að við áttum okkur á því að ríkið leikur þar alveg gríðarlega stórt hlutverk. Ef menn telja að þátttaka ríkisins á fjölmiðlamarkaði hafi ekki áhrif á rekstur og efnahag einkarekinna fjölmiðla, þá held ég að við þurfum að eiga mjög langt samtal, hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé, vegna þess að þá hefur mér ekki tekist það sem ég hef verið að reyna að sannfæra þig um.