150. löggjafarþing — 46. fundur,  17. des. 2019.

fjölmiðlar.

458. mál
[00:07]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég vona að ég lendi aldrei í að fara með mikið mein til hv. þingmanns því að hann mun þá ekki einu sinni gefa með verkjatöflu þó að hann hafi ekki hnífinn til að skera á það. Hv. þingmaður boðar hér skoðun og yfirferð á hlutverki og stöðu RÚV. Hvað heldur hv. þingmaður að það taki langan tíma? Hvað erum við búin að vera að gera það lengi? Er ekki tiltölulega nýbúið að gera það fyrir ekkert allt of löngu síðan? Stefna stjórnenda RÚV hefur gjörbreyst í kjölfarið á síðustu slíkri úttekt. Hins vegar er rétt hjá hv. þingmanni, ég er alltaf til í þá umræðu, umræðuna um grundvallarspurningar. Ætlar hv. þingmaður að segja við einkarekna fjölmiðla á meðan: Hinkrið, þraukið, því að við erum að velta fyrir okkur stöðu og hlutverki RÚV? Bíðið rólegir, það er með hagsmuni okkar í huga, á endanum, ef þið lifir af. Millifærslusjóðir eru eins og eitur í beinum hv. þingmanns þegar kemur að fjölmiðlum. Við erum með fullt af millifærslusjóðum, forseti. Erum við ekki að greiða fyrir hljóðritun með millifærslusjóðum? Er ekki meira að segja bókaútgáfan komin þar inn? Erum við ekki að greiða nýsköpunarfyrirtækjum úti um allan bæ og berjum okkur á brjóst fyrir það í gegnum millifærslusjóði sem er orðið neikvætt orð í munni hv. þingmanns þegar kemur að fjölmiðlum?

Ég veit að hv. þingmaður er sanngjarn maður og byggir mál sitt á rökum. Ég hef átt, eins og margoft hefur komið fram, samræður við bæði hv. þingmann og skoðanasystkini hans. Mig langar af einlægni að biðja hv. þingmann að svara mér hvernig standi á því að í löndum þar sem ríkisfjölmiðlar eru ekki á auglýsingamarkaði, eru ekki það mein, eins og hv. þingmaður notar myndmálið hér til að lýsa stöðu RÚV á auglýsingamarkaði, ákveði löndin samt að styrkja einkarekna fjölmiðla. Af hverju er það?