fjölmiðlar.
Herra forseti. Það sem ég sagði í ræðu minni og hv. þingmaður hlýtur að hafa tekið vel eftir er: Ef við ætlum að styrkja sjálfstæða fjölmiðla, sem ég tel að sé nauðsynlegt, skulum við gera það með gagnsæjum hætti og við skulum gera það þannig að jafnræði gildi og að allir séu jafnsettir. En það er ekki það sem gerist í þessu frumvarpi. Það er helsta ástæða þess að ég er ekki jafn ánægður með frumvarpið og ég gæti verið og það veit hv. þingmaður. Það er jafnræði og að það gangi það sama yfir alla og að allir sitji við sama borð og búi við sömu leikreglur. Þetta er svona einfalt.
Það er líka þannig alls staðar í Evrópu, eins og ég rakti, er ekki bara verið að styrkja — í mörgum löndum er verið að styrkja sjálfstæða miðla af ýmsum ástæðum og það kann að vera skynsamlegt, en menn gera líka eitt, menn reyna að beita skattkerfinu. Og af hverju beita menn skattkerfinu? Af því að þannig er jafnræðið best tryggt. Menn beita skattkerfinu t.d. með því að taka ákvörðun um að skattleggja ekki með virðisauka áskriftir fjölmiðla líkt og við gerum hér. Það er t.d. ekki gert í Bretlandi. Í Frakklandi er þetta innan við 3%, á Spáni í kringum 4%. Við erum í 11%, hv. þingmaður, við hækkuðum það 2015 úr 7% í 11% (KÓP: Þið hækkuðuð það.) og 2007 — já, já, það var minn flokkur sem tók af skarið í þeim efnum, ekki til að hækka þá tölu heldur vegna þess að það var gert og ég held að það hafi verið mistök. Við eigum auðvitað að viðurkenna mistök þegar þau eru gerð. Það er auðvitað líka þannig að við verðum að hafa kjark og þor og burði til þess í þessum þingsal að ræða (Forseti hringir.) um hlutverk og skyldur sem við ætlumst til að Ríkisútvarpið sinni.