150. löggjafarþing — 46. fundur,  17. des. 2019.

fjölmiðlar.

458. mál
[00:27]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég er vonsvikinn. Hv. þingmaður lofaði markaðsnámskeiði (Gripið fram í.) sem kom aldrei. Það hefði reyndar komið úr óvæntri átt en ég hefði þegið það enda alltaf til í að bæta á mig blómum. Hv. þingmaður gaf okkur reyndar skapalón að því hvað við eigum að tala um á eftir en ég ætla að láta það liggja á milli hluta. Hann vill ekki að við tölum um þátttöku RÚV á fjölmiðlamarkaði á Íslandi. Það er svona svipað og að tala um áætlunarflug frá Íslandi til annarra landa án þess að minnast á Icelandair eða tala um smásöluverslun á Íslandi án þess að minnast á Haga.

Ég verð að spyrja hv. þingmann: Veit hann hvaða útvarpsstöð á Íslandi hefur mesta hlustun? Veit hann það? Hv. þingmaður talaði um núverandi ástand og ég spyr: Vill hv. þingmaður frysta núverandi ástand, það ástand sem við erum með í einkareknum fjölmiðlum versus ríkisreknum? Mér sýnist sjálfum eftir hraðan yfirlestur á þessu frumvarpi að þeir styrkir sem til koma verði ekki til þess að bæta héraðsfréttablöðum upp, það verði ekki til að bæta í flóruna úti um landsbyggðina. Hugnast hv. þingmanni það?

Ég virði hv. þingmanni það til vorkunnar að hann spurði eftir hinu og ýmsu en hann á eftir að heyra ræðu mína. Ég verð samt að spyrja hann: Hversu mikið má þetta ástand kosta? Við verjum nú þegar til Ríkisútvarpsins 4,5 milljörðum eða meira. Það fær 2 milljarða í viðbót í auglýsingatekjur. Nú á að taka 400 milljónir mínus reksturinn á nefndinni til að styrkja aðra miðla. Þá erum við komin upp í 7 milljarða sem áskriftarfjölmiðlar yfir höfuð munu kosta okkur landsmenn. Þess vegna spyr ég hv. þingmann: Hversu mikið má þetta kosta?