fjölmiðlar.
Forseti. Ég vona að hv. þingmaður virði það við mig að þetta voru margar spurningar og mögulega lendir ein á milli skips og bryggju sem ég get komið að í seinna andsvari. (ÞorS: Það koma fleiri.) Já, það koma fleiri andsvör.
Hversu mikið má þetta kosta? Ég er ekki einn af þeim sem telja sig vera með töfrasvar við því. Hversu mikið má lýðræðið kosta? Hversu mikið má átak í íslensku kosta? Hversu mikið má átak í læsi kosta? Hefur hv. þingmaður fylgst með umræðu um PISA-könnun þar sem rætt var um hlutverk fjölmiðla? Hversu mikið má það kosta? Eigum við að leggja þetta allt saman? Ég veit það ekki. Ég er ekki einn af þeim sem hugsa á svo einfaldan máta að það verði að passa inn í excel-skjal. (Gripið fram í.) Óbreytt ástand, nei, þvert á móti, ég kom inn á það í ræðu minni, forseti, að ég held að leiðin til að frysta ástandið eins og það er í dag, þ.e. að ekki komi nýir fjölmiðlar inn á markaðinn, sé að styðja enga fjölmiðla. Þá eru einu fjölmiðlarnir sem mögulega kæmust inn fjölmiðlar í eigu fjársterkra aðila. Viljum við það? Ég held ekki. Ég held að leiðin til að koma á fót enn fjölbreyttari fjölmiðlamarkaði sé að styrkja þá sem stofna fjölmiðil.
Það er rangt, forseti, að hér sé ekki hugað sérstaklega að héraðsfréttablöðum. Það er beinlínis rangt. Þau eru meðal upptalinna atriða í skilgreiningum 4. liðar 1. gr. og ég hvet hv. þingmann til að lesa greinargerð á bls. 12 þar sem sérstaklega er farið inn á þetta. Ég hef unnið á héraðsfréttablaði og veit hvernig staðan er þar. Ég veit hversu mikilvægur svona stuðningur yrði slíku héraðsfréttablaði.
Mesta hlustun er mismunandi eftir aldursflokkum. Ég hygg, án þess að ég hafi fyrir því vísindalegar rannsóknir, að Bylgjan hafi mesta hlustun af öllum útvarpsstöðvum (Forseti hringir.) en það er ánægjulegt að sjá hvað Rás 1 hefur aukið hlustun sína á síðustu árum.