fjölmiðlar.
Forseti. Við hv. þingmaður drögum gjörólíkar ályktanir af þeirri staðreynd að við séum færri en nágrannar okkar á Norðurlöndum. Ég dreg þá ályktun að það sé enn meiri þörf á stuðningi fyrir fjölmiðla hér því að þá koma inn enn minni tekjur. Fyrirtæki eru einfaldlega færri, þar með auglýsingar og áskrifendur. Ég dreg þá ályktun að það sé enn ríkari þörf á stuðningi á Íslandi en hjá milljónaþjóðunum í kringum okkur þó að það séu ekki margar milljónir.
Hvað varðar lýðræðislegt hlutverk RÚV hef ég ekki komið því nógu skýrt frá mér eða hv. þingmaður ekki alveg tekið eftir því sem ég sagði. Lýðræðishlutverkið snýst um fjölmiðla almennt. Þess vegna þurfum við að styrkja einkarekna fjölmiðla. Ég held að ég hafi talað margoft í ræðu minni um mikilvægt menningarhlutverk Ríkisútvarpsins. Ég held að ég hafi meira að segja nefnt að fyrir mér væri Ríkisútvarpið ein af helstu menningarstofnunum þjóðarinnar. Hvað má það kosta, hv. þingmaður?