150. löggjafarþing — 46. fundur,  17. des. 2019.

fjölmiðlar.

458. mál
[00:34]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það var áhugavert að hlusta á ræðu fyrrverandi þingfréttamanns Fréttablaðsins sem veitti þingmönnum það aðhald sem hann talaði um í ræðu sinni og gerðist svo þingmaður Vinstri grænna. Að tala um að þetta snúist ekki um RÚV er auðvitað tiltölulega mikil einföldun á þessari heildarmynd. Auðvitað snýst þetta um heildarmyndina. RÚV er það fyrirferðarmikið á þessum markaði að það er ekkert hægt að ræða um fjölmiðlaumhverfi á Íslandi öðruvísi en að taka stærsta aðilann inn í þá umræðu. Og auglýsingastarfsemi RÚV — finnst þingmanninum það eðlilegt hvernig RÚV hagaði sér á auglýsingamarkaði í sumar þar sem þeir með Evrópukeppnina í fótbolta þurrkuðu upp auglýsingamarkaðinn af því að þeir skylduðu kaupendur á auglýsingum í kringum fótboltann til að kaupa auglýsingar annars staðar í dagskránni og eyða þar með öllu auglýsingafé sínu?

Auglýsingar á internetinu, þingmaðurinn kom inn á það. Finnst hv. þingmanni að við ættum að gefa einkareknum fjölmiðlum sama frelsi og þeir sem auglýsa á internetinu hafa? Það er auðvitað grundvallaratriði. Er þingmaðurinn tilbúinn að styðja það að þeir geti auglýst á sama grunni á vefmiðlum og á internetinu eins og þau fyrirtæki gera sem þar eru með sínar auglýsingar?

Þingmaðurinn gaf það svolítið í skyn í sinni ræðu að þeir sem talað hafa hér af hálfu Sjálfstæðisflokksins sérstaklega vildu ekki styrkja sjálfstætt rekna fjölmiðla. Það er auðvitað alrangt. Við viljum það. Við viljum bara fara aðra leið. Af hverju má ekki gera það með því að laga rekstrarskilyrði þessara fjölmiðla með því að lækka álögur ríkisins á reksturinn og skapa þeim þannig rekstrargrundvöll og láta þá keppa á þeim grunni? Þingmaðurinn á ekki að reyna að draga upp einfalda mynd af sjálfum sér (Forseti hringir.) í þessum ræðum. Það er allt að því ósmekklegt, hafandi starfað svo mikið við fjölmiðla (Forseti hringir.) sem hann hefur gert í gegnum tíðina. Hann er á alveg sama plani og við hin, (Forseti hringir.) vel inni í þessu sem við erum að ræða um við hv. þingmann.

(Forseti (WÞÞ): Ég minni hv. þingmenn á að virða tímamörk.)