fjölmiðlar.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að rifja upp fortíð mína sem þingfréttaritari, ég er nokkuð stoltur af henni og treysti því að hv. þingmaður sé mér sammála um það. Einfeldni mín, forseti, snýr ekki að efni þessa frumvarps heldur að því að flækja ekki málið að óþörfu. Hv. þingmaður sagði: Það er ekki hægt að tala um fjölmiðla án þess að tala um RÚV. Jú, það er vel hægt. Það gerðu t.d. þrír stjórnmálaflokkar í stjórnarsáttmála sem þeir sömdu og samþykktu, allir þrír flokkarnir, þar sem var talað um einkarekna fjölmiðla án þess að minnast einu orði á RÚV. Það fannst okkur ekkert vandamál fyrir tveimur árum, forseti.
Ég hef ekki ýjað að því að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilji ekki styðja einkarekna fjölmiðla. Það hefur misskilist ef menn draga þá ályktun. Alls ekki. Það sem ég er að ýja að er að fólk sem er að flækja það of mikið inn í RÚV, geri sér kannski ekki grein fyrir því hversu mikil þörf er á stuðningi við einkarekna fjölmiðla núna.
Hv. þingmaður spurði mig varðandi frelsi fjölmiðla til að auglýsa á internetinu, ég held ég hafi náð því, að það yrði það sama og er hjá erlendum fyrirtækjum sem auglýsa þar. Ég átta mig ekki alveg á því. (Gripið fram í.) Við höfum sett fjölmiðlum og auglýsendum hér strangari reglur en víða, t.d. hvað varðar áfengisauglýsingar. Ég er ekki á því að því eigi að breyta en einmitt þess vegna held ég að það þurfi að styðja einkarekna fjölmiðla. Einmitt þess vegna held ég að þörfin sé meiri.
Hvað varðar agressífar auglýsingar og einstaka auglýsingaherferðir þá hef ég ekki fylgst með því. En ég ætla þó að segja að það er ekkert vandamál í mínum huga. Ég tel ekki að við séum komin í það töfraástand sem er eins og best getur orðið hvað varðar RÚV á auglýsingamarkaði. (Forseti hringir.) Ég hef haldið um það ræður meira að segja hér. (Forseti hringir.) En það snertir ekki þetta frumvarp.