150. löggjafarþing — 46. fundur,  17. des. 2019.

fjölmiðlar.

458. mál
[00:41]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég sagðist ekki ætla að svara um einstaka auglýsingaherferðir og alls ekki því orðalagi sem hér kom fram. Ég ætla ekki að taka orð hv. þingmanns trúanleg um samkeppnisógnir. Hv. þingmaður verður að virða það við mig að ég hef ekki sett mig inn í einstaka auglýsingaherferðir RÚV. Ég hef hins vegar sagt, forseti, og get sagt það aftur, að ég hef ekki þá trú að við séum búin að ná töfrastundinni með það hvernig RÚV eigi að vera á auglýsingamarkaði. Ég hef jafnvel talað fyrir því, þar sem við erum búin að búa til ríkisrekið birtingarhús, að þá ætti kannski hluti þeirra tekna að fara til annarra auglýsinga. Ég átta mig á skekkjunni á markaðnum. Hv. þingmaður hefur greinilega aldrei heyrt mig tala um RÚV áður miðað við það hvernig hann lýsir minni afstöðu til þessa. Í ræðu og riti hef ég talað um að það sé ekkert að því að setjast yfir og velta fyrir sér nákvæmlega hvernig RÚV eigi að vera á auglýsingamarkaði. Ekkert að því. (Gripið fram í.) Ég bið okkur öll um að huga að því að vera ekki að flækja hlutina um of í okkar hugðarefnum sem snúa að því hvernig RÚV standi.