150. löggjafarþing — 46. fundur,  17. des. 2019.

fjölmiðlar.

458. mál
[00:42]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég er sammála hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé, við eigum ekki að vera að flækja þetta um of. Þess vegna spyr ég: Getur hv. þingmaður tekið höndum saman með okkur sem viljum styrkja og styðja við sjálfstæða fjölmiðla — alveg óháð RÚV, við skulum bíða með það aðeins — en hafa styrkjakerfið gagnsætt og tryggja það að jafnræði gildi fyrir alla fjölmiðla, að allir sitji við sama borðið, að sömu leikreglur gildi? Eigum við að vera sammála um að taka upp slíkt stuðningskerfi, hv. þingmaður? Ég hefði gaman af að heyra það vegna þess að það er ekki alveg það sem felst í þessu frumvarpi.

Hv. þingmaður kallar eftir því að við svörum því af hverju aðrar þjóðir eru svona uppteknar af því eða leggja svona mikla áherslu á að styðja með beinum styrkjum við sjálfstæða fjölmiðla og vitnaði þar á meðal til Norðurlanda. Þá vil ég spyrja hv. þingmann: Hvernig stendur á því að öll Norðurlöndin, fyrir utan Ísland, öll, meira að segja samherjar hans í Noregi, Finnlandi og Svíþjóð o.s.frv., hafa komist að þeirri niðurstöðu að það sé nauðsynlegt að ríkisrekstur fjölmiðla sé ekki í samkeppnisrekstri við einkarekna fjölmiðla, að ekki séu auglýsingar í ríkisreknum fjölmiðlum? Af hverju hafa öll Norðurlöndin og í rauninni eiginlega öll Evrópa komist að þeirri niðurstöðu að ein af forsendum þess að búa til og tryggja eðlilegan og sæmilega heilbrigðan rekstrargrunn fyrir sjálfstæða fjölmiðla sé að ríkisrekstur fjölmiðlafyrirtækis sé ekki í beinni samkeppni (Gripið fram í.) um helstu tekjuöflunarleið sjálfstæðra miðla? (Forseti hringir.) Öll Norðurlöndin, hv. þingmaður, hafa komist að þessari niðurstöðu.