150. löggjafarþing — 46. fundur,  17. des. 2019.

fjölmiðlar.

458. mál
[00:44]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég vil að jafnræði gildi þegar kemur að stuðningskerfi á þann hátt að allir fjölmiðlar geti sótt um. Ég held hins vegar að í þessu eins og öðru gildi stærðarhagkvæmni. Ég held að litlir fjölmiðlar þurfi hlutfallslega á meiri stuðningi að halda en þeir stóru þannig að ég held að það sé skynsamlegt þegar slíkt styrkjakerfi er búið til að ekki sé bara horft á haus heldur á stærð, það sé ekki hausatalning heldur horft til þess að litlir fjölmiðlar þurfi meiri stuðning.

Af hverju hafa Norðurlöndin komist að þeirri niðurstöðu sem hv. þingmaður fór yfir? Kannski er það rétta niðurstaðan, ég veit það ekki. Öfugt við það sem hv. þingmaður og sumir sem hafa komið í andsvör við mig virðast halda hef ég ekki heittrúarskoðun um stöðu RÚV á auglýsingamarkaði, alls ekki, en ég hef þá bjargföstu skoðun að við eigum ekki að blanda því inn í þetta, alls ekki. Kannski veit hv. þingmaður hvernig fjármunum er varið til ríkisfjölmiðlanna í öðrum löndum. Hefur ígildi útvarpsgjalds þar kannski alltaf runnið til ríkisfjölmiðilsins en ekki að hluta eins og var hér um tíð? Er kannski hlutfall stuðnings við ríkisfjölmiðlana hærra þar en hér? Veit hv. þingmaður það? Hann þarf að sjálfsögðu ekki að svara mér frekar en hann vill. Ég er að velta upp spurningum sem geta skýrt af hverju kerfið er öðruvísi. Ég get ekki dregið þá gagnályktun sem mér heyrist sumir hér draga, að staða RÚV á auglýsingamarkaði skipti öllu máli. Aftur spyr ég: Af hverju styðja önnur lönd einkarekna fjölmiðla þar sem ríkisreknir fjölmiðlar eru ekki á auglýsingamarkaði? (Forseti hringir.) Er ekki einhver önnur breyta þarna sem horft er fram hjá með því að einblína á RÚV?