fjölmiðlar.
Herra forseti. Hafi ég skilið hv. þingmann rétt er alveg ljóst að hann telur að það eigi að styrkja fjölmiðla á Íslandi með skattfé. Við getum verið sammála um það. Ég vil að vísu fara aðra leið en hv. þingmaður. Ég tel að þetta eigi að vera gagnsætt og í gegnum skattkerfið, en látum það liggja milli hluta. En það sitja ekki allir við sama borð, það er niðurstaða sem ég komst að, hafi ég skilið hv. þingmann rétt, að það sé einhver stærðarhagkvæmni. Ef einhvers staðar er stærðarhagkvæmni er hún auðvitað hjá Ríkisútvarpinu en það má ekki nefna Ríkisútvarpið hér. Af hverju er hv. þingmaður ekki með mér í því að færa rekstrarumhverfi sjálfstæðra fjölmiðla, a.m.k. áskriftarmiðla, til samræmis við það sem gerist á öðrum Norðurlöndum þegar kemur að virðisaukaskatti? Eigum við að sameinast um það? (Forseti hringir.) Við getum gert það núna strax á nýju ári, hv. þingmaður, og lækkað virðisaukaskatt eða jafnvel afnumið hann, eins og er í Danmörku, af áskriftum prentmiðla og annarra áskriftarmiðla.