150. löggjafarþing — 46. fundur,  17. des. 2019.

fjölmiðlar.

458. mál
[00:48]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég er til í að skoða allt. Ég hef sagt það meira að segja í umræðu sem hv. þingmaður vitnaði til sem var haldin hér 2018, ef ég man rétt. Ég er til í að skoða allt sem styrkir fjölmiðlaumhverfið. Ég mun að sjálfsögðu ekki lofa út í loftið eins og einhver bavíani einhverju sem ég veit ekki hvaða fjárhagslegar afleiðingar hefur. Ég vona að hv. þingmaður, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, (Gripið fram í.) átti sig á afleiðingum þessarar virðisaukaskattstillögu. Ég er til í að setjast yfir það.

Hv. þingmaður talar eins og í skattkerfinu gangi eitt yfir alla. Vorum við ekki að samþykkja þrepaskipt skattkerfi hér um daginn? Það er alþekkt að meira að segja í skattkerfinu séu þrep (Gripið fram í.) og skatturinn komi mismunandi niður á fólki eftir efnahag og jafnvel fyrirtækjum eftir stærð. Hver er munurinn á því, forseti? (Forseti hringir.) Og fyrirgefðu aðeins að ég syndgi upp á náðina, það sem ég hef sagt varðandi auglýsingatekjur RÚV er að ef við ætlum að skerða tekjurnar eiga þeir sem það segja að segja á móti: Ókei, ætlum við að bæta þeim það upp? Ef ekki, hvað ætlum við að fækka starfsfólkinu mikið? (Gripið fram í.)