fjölmiðlar.
Hæstv. forseti. Ég ætla að byrja á því að setja fram fullyrðingu og nokkrar spurningar. Ég ætla að fullyrða það að þetta frumvarp er tímaskekkja. Ég ætla að spyrja að því af hverju það er lagt hérna fram. Nú sakna ég þess að hafa ekki hæstv. menntamálaráðherra í salnum, en ég spyr mig eftir þær umræður sem hér hafa farið fram í kvöld: Hverjir styðja þetta frumvarp? Það er ekki að heyra á þeim Sjálfstæðismönnum sem hér hafa talað í kvöld að þeir hafi sérstaklega mikinn áhuga á því að styðja þetta frumvarp eins og það liggur fyrir. Það hefur nú ekki heyrst í einum einasta Framsóknarmanni þannig að það virðist svo sem að þeir séu feimnir að tjá sig um þetta mál. Þannig að ég spyr mig: Hvernig komst þetta frumvarp í gegnum ríkisstjórn? Hvernig komst það í gegnum ríkisstjórnarflokkana? Ég sé ekki í hendi mér að þetta frumvarp njóti stuðnings.
Ég held að það sé öllum ljóst að það er líklega ekki í neinum einasta öðrum geira sem þróun hefur orðið jafn gríðarleg á jafn skömmum tíma og í fjölmiðlun. Árið 1930, þegar Ríkisútvarpið var stofnað, þá var það stórkostlegt skref og stórkostleg hugmynd, ég man reyndar ekki svo langt aftur. En svo að ég stikli á steinum þá man ég þó það langt aftur að ég man eftir því þegar dagskrá Ríkisútvarpsins var rofin haustið 1963 vegna þess að þáverandi Bandaríkjaforseti var skotinn til bana. Ég man líka eftir því að hafa hlustað á það ár á tíu ára afmælisdaginn minn að Surtsey varð til í nánast beinni útsendingu í sama útvarpi. Árið 1966 var opnuð sjónvarpsstöð sem var eins og svart/hvít vídeóleiga til að byrja með. Árið 1976 fengu menn litasjónvarp. Árið 1985 horfðu menn á Live Aid — ég veit ekki hvernig á að þýða það, herra forseti, mér þykir leitt að sletta — í beinni útsendingu, reyndar ekki fyrir tilstuðlan ríkisfjölmiðilsins. Árið 1939 sögðu menn frá heimsstyrjöldinni síðari, hvernig hún byrjaði og fyrstu þróun hennar, með því að hlusta á erlendar útvarpsstöðvar og miðla til landsmanna því sem þeir heyrðu. Árið 1991 horfðum við á Persaflóastríðið byrja í beinni útsendingu, reyndar fyrir tilverknað erlendrar stöðvar. Núna, herra forseti, er þetta hér, tölvan og síminn, sjónvarpið mitt og útvarpið mitt. Ég get hlustað á hvað sem mér dettur í hug. Ef ég vil hlusta á gríðarlega góða óperuútsendingu fer ég í tölvuna mína. Ef ég vil hlusta á eitthvað sem er að gerast hér og þar í heiminum, þegar það gerist, fer ég í tölvuna mína.
Svo vill til, herra forseti, af því að fyrsti kafli þessarar ræðu minnar er um RÚV þó að frumvarpið sé ekki um það, að við erum með ljósleiðara nánast á hvern einasta sveitabæ á Íslandi. Samt er það þannig að núna í síðustu viku voru menn án samskipta við heiminn í tvo, þrjá sólarhringa í 300 km radíus frá Reykjavík — í nokkra sólarhringa, herra forseti. Þrátt fyrir það að það illviðri tæki því miður eitt líf held ég því fram að við höfum verið heppin að það varð ekki meiri skaða af þessu veðri, m.a. vegna þess að fólk var án samskiptamiðla.
Þegar ég segi að þetta frumvarp sé tímaskekkja þá á ég við það að mér finnst að með því sé verið að frysta ákveðið ástand, þ.e. ástandið sem við erum með nú, þá einkareknu fjölmiðla sem við erum með nú. Og víst er það að þegar menn hafa frétt af möguleika á því að sækja sér styrki í ríkissjóð þá virðist manni að nokkrum fjárfestum hafi hlaupið kapp í kinn, þeir hafa verið að kaupa upp fjölmiðla og sameina o.s.frv., væntanlega til þess að tryggja sér að þeir fengju vænni sneið af kökunni í gegnum þessa þrjá ágætu menn sem eiga eftir að sitja yfir einhverjum pappírum næstu árin og taka við umsóknum í þennan sjóð sem á að setja upp. Og ég spyr aftur, herra forseti: Ætlum við sem sagt að frysta þetta ástand?
Svo ég vitni aftur í þessar góðu ræður sem Sjálfstæðismenn margir, hv. þingmenn, hafa flutt hér í kvöld þá hafa þeir sagt: Það er alveg ómögulegt að hafa Ríkisútvarpið á auglýsingamarkaði. Rekstur Ríkisútvarpsins eins og við þekkjum hann kostar á fimmta milljarð og síðan fær Ríkisútvarpið 2 milljarða í viðbót í auglýsingatekjur. Spurningin er: Ef Ríkisútvarpinu verður kippt út af auglýsingamarkaði í því skyni að örva það að aðrir fjölmiðlar geti setið að þessum auglýsingatekjum, á þá að bæta Ríkisútvarpinu þessa 2 milljarða úr ríkissjóði? Ef þetta allt hlutgerist, við höldum áfram, þ.e. fjárveitingavaldið, að greiða svona á fimmta milljarð í RÚV beint, 2 milljarða sem verða til af því að auglýsingatekjurnar detta út, 400 milljónir út af því sem við ætlum að greiða fyrir frjálsa fjölmiðla svokallaða, þá erum við að nálgast 7 milljarða, herra forseti, sem þessi þjóð er að borga í áskrift að fjölmiðlum. Nú veit ég ekki um aðra hér á þessum stað en það vill þannig til að þegar harðnar í ári segir maður gjarnan upp einni áskrift, ef þannig vill til. Og trúið mér, ég væri alveg til í að segja upp áskriftinni að RÚV, ég bara má það ekki, ég get það ekki. Ég get sagt mig úr þjóðkirkjunni en ég get ekki sagt upp RÚV. Ég verð að vera þar nauðugur viljugur.
Það er kannski þess vegna sem við Miðflokksmenn höfum lagt fram tillögu, sem hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé segir að sé ættuð úr smiðju Davíðs Oddssonar, hún versnar ekki mikið við það. Ég er honum þakklátur fyrir að benda á þetta og ég held að allir viti það sem hér eru að hv. þingmaður er sagnfræðimenntaður og ég trúi honum mjög vel í þessu efni. En það breytir ekki því að hugmyndin er góð. Ég held að hugmyndin sé réttara sagt algjörlega frábær. Ef við gefum fólki kost á því, nákvæmlega eins og við gerum með sóknargjöldin að hluta, við getum jú ánafnað þeim til annarra trúfélaga, þá finnst mér bara hin besta hugmynd að við veitum fólki, þ.e. þjóðinni, almenningi, möguleika á því að beina afnotagjaldi sínu til þeirra fjölmiðla sem hugur þeirra stendur til upp að vissu marki svo að ekki sé sparkað löppunum undan Ríkisútvarpinu í einu vetfangi. Enda segir það líka í mörgum könnunum og Ríkisútvarpið hefur verið mjög duglegt að halda því á lofti að traust til þess sé alveg ótrúlega mikið. Einmitt með þessari hugmynd fáum við sönnun þess og það góða fólk sem starfar við RÚV fær þá líka beint í æð hversu mikils trausts stofnunin eða fyrirtækið og þetta ágæta starfsfólk nýtur og ég held að það sé líka mjög gott.
Það sem ég óttast er að ef við erum að festa okkur núna í því ástandi sem ríkir á Íslandi höldum við aftur af því að einhverjir nýir aðilar hasli sér völl á þessum markaði. Það gæti verið vegna þess að þróunin heldur áfram. Efnisveitur, einn maður og tölva er efnisveita, bloggsíða er fréttaveita. Síðan höfum við náttúrlega þann vankant enn þá sem eru falsfréttir sem spretta náttúrlega upp úr því þegar eftirlit er lítið o.s.frv.
Mér þótti vænt um að heyra það t.d. áðan frá hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé að það væri ekki minnst á RÚV í stjórnarsáttmálanum og auðvitað er ekki minnst á RÚV þar. Það er ekki minnst á neitt óþægilegt í stjórnarsáttmálanum, hann er bara þessi lágu þröskuldar um mál sem skipta engu máli svo menn geti setið áfram. Það er enn ein staðfestingin á því í viðbót.
Hæstv. menntamálaráðherra varð dálítið tíðrætt um tunguna í sinni ræðu. Ég fagnaði því að sjálfsögðu en ég sé ekki í skilyrðunum sem sett eru í d-lið 3. gr. frumvarpsins fyrir endurgreiðslu á kostnaði, skilyrði í lið a–k, að þar sé að finna skilyrði um að íslenskt mál sé í hávegum haft. Ég er algerlega sammála hæstv. ráðherra um það að eitt mikilvægasta hlutverk fjölmiðla yfir höfuð, og þá ekki síst flaggskipsins, er að heiðra tunguna, tungumálið okkar, ekki bara vegna þess að það sé mikilvægt fyrir varðveisluna heldur vegna þess að þessir aðilar, fjölmiðlafólk yfir höfuð, er að kenna okkur öllum íslensku á hverjum einasta degi. Því miður, herra forseti, stendur enginn fjölmiðill á Íslandi undir því atriði, því miður, og ég ætla ekki að lýsa því hversu oft maður stendur sjálfan sig að því að reyta hár sitt yfir málfarinu, sérstaklega á vefmiðlum þar sem hraðinn er mikill, þar er málfarið, herra forseti, til hreinustu skammar og sá fjölmiðill sem á að halda utan um menningarhlutverkið svokallaða stendur sig ekki heldur, því miður. Og hvað er kannski flaggskipið eða helsti gunnfáninn í þessu? Jú, það er Rás 1. Ég hitti góðan mann í haust sem er dyggur hlustandi á Rás 1 og þá kom til umræðu á milli okkar — ég tek það fram að hann er langt frá mér í pólitík — þetta fyrirhugaða frumvarp. Hann sagðist hafa gert óformlega könnun á hlustun sinni á Rás 1 í sumar á gefnum tíma, sem var vika, hálfur mánuður eða þrjár vikur, og 52% af því efni sem hann hlustaði á var endurtekið efni, 52%.
Það sem er kannski líka svo vont, herra forseti, er að við lestur á ársreikningi RÚV er ekki nokkur vegur að sjá hvað Rás 1 kostar, hvað Rás 2 kostar, hvað sjónvarpið kostar. Það er ekki hægt. Ef við hugsuðum upphátt og værum kannski að trimma Ríkisútvarpið niður, t.d. með því að leyfa fólki að ráða sjálfu hvert hluti af afnotagjaldinu rynni, væri afar erfitt fyrir okkur að reyna að hafa einhver áhrif til góðs á þennan rekstur ef við vitum ekki hvernig hann er samsettur. Sjálfum hefur mér dottið í hug að réttast væri að sameina Rás 1 og 2 vegna þess að þar er menningarhlutverkið. Ég hef sagt það áður í ræðustól: Það er ekkert ómerkilegra menningarefni að halda upp á tónleika Fræbbblanna heldur en Jórunnar Viðar hálfri öld eða 70 árum fyrr. Það er í sjálfu sér óskorað auk þess það efni sem er til þarna, sem er djásn. En ég spyr mig: Þurfum við endilega að reka sjónvarpsstöð? Fyrir 1.500 kall getum við fengið norræna efnið sem er sýnt mikið af Símanum. Ríkisfréttastofa hefur ekki verið rekin að mínu viti síðan bara TASS í Rússlandi. Þannig að ég spyr mig: Ætlum við að halda flaggskipinu í sama kerfi og í sama horfi og 1930 árið 2020? Ég held ekki. Þeir sem segja að það sé ekki hægt að ræða þetta mál án þess að ræða um RÚV eru á villigötum vegna þess að auðvitað hlýtur það að liggja í hlutarins eðli að þróun þess fyrirtækis mun hafa áhrif á þróun alls markaðarins og við getum ekki leyst hluta markaðarins úr fjötrum nema vera viss um það hvað við ætlum að gera við þann aðila sem ber ægishjálm yfir alla aðra á þessum markaði.